Eimreiðin - 01.01.1949, Blaðsíða 10
2
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREEÐIN
færð í nokkum hinna ofangreindu listflokka. Vér
eigum, sem kunnugt er, mikið af alls konar lærdóms-
og listafólki og veitum árlega álitlega fúlgu til þess
að hressa upp á þetta fólk og styrkja, t. d. til utan-
fara, svo að það megi auðga anda sinn og einnig
láta ljós sitt skína víðar en á gamla Fróni. Hafa af
þessum ferðum stundum hlotizt miklar og giftusam-
legar landkynningar, svo sem nokkur skráð dæmi
votta.
Þá varð það og undir eins ljóst, er vopnahlé komst
á og leiðir opnuðust aftur nokkurn veginn óhindrað
til meginlands Evrópu, að þaðan myndi oss mikil
þörf þeirrar andlegu næringar, sem vér höfðum orðið
að fara á mis við í fimm löng og erfið stríðsár. Streymdi
nú inn í landið mikill fjöldi erlendra lærdóms- og
listamanna — og flutu í þeim hópi alls konar kaup-
sýslumenn, urðu meira að segja þar einna fjölmenn-
astir og jafnframt framtaksmestir um að kaupa af
oss dollaravörur, enda sérstakt skip í hraðsiglingum
milli landanna til þess að flytja fólkið og bæta oss
upp hinar löngu fjarvistir. En margs konar skemmt-
anir og andlega uppbyggingu buðu hinir erlendu
gestir landsfólkinu gegn sæmilegu gjaldi — og verður
hér ekki unnt að greina frá, hve miklu sú fúlga hefur
numið hið umrædda tímabil í erlendum gjaldeyri,
því um það efni liggja ekki fyrir opinberar skýrslur.
Það er mikið rætt og ritað um, að hæna þurfi
hingað erlenda ferðamenn, til þess að afla þjóðinni
erlends gjaldeyris. Ekki vantar það, að mikill hefur
ferðamannastraumurinn frá útlöndum verið undan-
farin fjögur ár. En útstreymið héðan hefur einnig
verið mikið. Um gjaldeyrishagnað af þessum við-
skiptum minnumst vér ekki að hafa séð skráðar