Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1949, Page 66

Eimreiðin - 01.01.1949, Page 66
58 FÆREYSK HEIMASTJÓRN eimreiðiN tili virðist kyrrð vera meiri en áður í stjórnmálabaráttunni hja nágrönnum okkar. En ltvað helzt sú kyrrð lengi? Samkomulagið var gert í trásst við Fólkáflokkinn, og telja má víst, að liann haldi áfram barátt- unni fyrir meginkröfu sinni, sem er fullur skilnaður við Dani. Hvort honum vex fylgi frá því, sem nú er, kemur fvrst og fremst undir þeirri reynslu, sem Færeyingar fá af hinni nýju stjórnarhót. Hún nær ekki laugt. Færeyingar eru að vísu viður- kenndir sem sérstök þjóð, en þeir eru enn liluti af danska rík- inu og hafa fulltrúa í Ríkisdeginum danska. Frjálsræði þeirra in»- an þessara vébanda verður fyrst og fremst undir því komið, liverjif fara með völdin í Danmörku á hverjum tíma. En það er bersviu- legt, að Danir liafa fullan hug á því að varðveita ríkisheildina •og leggja því áherslu á, að sambúðin verði góð. Og það skrefið, sem ræður úrslitum, geta Færeyingar stigið, þegar meiri hlutinn vill, og sagt algerlega skilið við Duni. Þeir eru því alfrjálsir gerða sinna og hafa í höndunum viðurkenningu Dana fyrir full- gildu færeysku lýðræði í sjálfstæðismálinu. Og þeir hafa fengið framgengt hinni mikilsverðu menningarkröfu Paturssons, að fær- eyskan er viðurkemid sem höfuðtunga þjóðarinnar. Aðalmótbára þeirra, sem varðveita vilja sambandið við Dan- mörku er sú sama sem notuð var hér á landi af þeim, sem voru mest hægfara í sjálfstæðisbaráttunni: að þjóðin rísi ekki undir sjálfstæðinu. Færeyingar, sem byggja 17 af hinum 18 eyjum, er einu nafni lieita Færeyjar, eru að vísu fámennari en íslendingar — þeir munu vera tæp 30.000. Hins vegar er þétthýlið rúmlega tífalt meira en hér á landi, því að eyjarnar eru ekki nema tæpir 1400 ferkm., og er hagnaður að því, að því er snertir t. d. skóla- hald og vegagerð. En meðferð utanríkismála yrði þungur haggi á færeysku lýðveldi, jafnvel þó meiri spamaðar væri gætt en hjá okkur, og strandgæzla mundi og kosta mikið fé. Skilnaðar- málið er því fvrst og fremst fjárhagsmál, en um varðveizlu sjálf- stæðisins yrðu Færeyingar undir sömu sökina seldir og við og aðrar vopnlausar smáþjóðir. Þeir yrðu að fá tryggingu sér stærri þjóða fyrir varðveizlu sjálfstæðisins og hernaðarvernd, því að séð er, að hlutleysisyfirlýsingar eru plögg, sem fáir taka mark á, og sízt þeir, sem hættulegastir eru réttindum smáþjóðanna.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.