Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1949, Page 82

Eimreiðin - 01.01.1949, Page 82
74 RITSJÁ EIMREIÐIN fremur þörf á, að við auðsýnum hver öðrum miskunn og mildi“. Sigurbjörn Einarsson. Hann hefur verið mjög hráðþroska og draumlynt barn, 5 eða 6 ára ganiall hugði liann að guð hefði útskúfað sér, sökum synda og misgjörða, en fékk þó hugg- un hjá ömmu sinni og föður! Síðan var Jesús með honum hvar sem liann fór og hjálpaði, þegar eitthvað hlés á móti. — Á námsárunum komu aft- ur efasemdir með nýjum lífsviðhorf- um, fráfall frá Kristi, andlcg umbrot, ægilegir tímar sálarkvala. S. E. nefn- ir það óliappasælt lífsviðhorf. Sr. Sigurbjörn er nijög opinskár og óhlíf- inn við sjálfan sig i þessum játning uin. Svo kemur hugarfarsbreyting á ný, eftir miklar þrautir, og hann lýt- ur Kristi í lotning, frelsaranum, sem hefur gefið honum ljós fyrir myrkur. Spurningunni um hvað lífið sé, svarar séra Sigurbjörn með orðum Páls postula: „Lífið er mér Kristur“. Forsendur þess segir liann, að séu að vísu handan við alla rökfærzlu, sannleikurinn hefur tekið hann og sigrað. Hann aðeins trúir því, veil það, eins og t. d. að 2 og 2 eru 4. Hann langar ekki til að deyja, liefur engan áhuga fyrir því, hvernig frain- haldslifið er, en hlakkar til að sjá Krist augliti til auglitis eins og hann er í guðs ríki. Lífið er náðartíð, og dauðinn er sigurvon, er byggist á hjargi trúfestunnar og kærleikans, sem auglýsist á Golgata. — Leit spírit- ista að sönnunum fyrir framhaldslífi, finnst S. E. vera „ótrúræn sjálfs- hyggja“, er dreifi huganum frá því eina, sein er nauðsynlegt. Segir hann sjálfur, að lesandanum finnist þetta, ef til vill, ósanngjarnt, og ekki get ég neitað því, að mér finnst það svo, þótt aldrei hafi ég tekið þátt í rannsóknum dularfullra fyrirbrigða. Eg her lotningu fyrir ölluni rann- sóknum, sem framkvæindar eru í ein- lægri sannlciksleit. Sigurjón Jónsson ritar langa og fróðlega grein um mannlífið, tak- inörk þess og tilgang, en ekki er hann bjartsýnn á horfurnar nú sem stendur. Um tilveru guðs og trú á aimað líf ritar liann að vísu alllangt mál frá fræðilegu sjónarmiði, en læt- ur ekki í ljós neina skoðun, er hann kann að hafa.? Spíritista kveðst liann aðeins þekkja sem álieyrandi, ekki hafa sjálfur fengizt við þær rann- sóknir, en cr þó, að eigin áliti, dóm- hær um að lýsa því yfir, að hann „hafi ekki heyrt um neitt, að svo gildar sannanir hafi verið færðar fyf' ir, að stafi frá látnum mönnuin, að þær séu fullnægjandi“. Lílsskoðun S. J. er, að heillarík framtíð mannkyns sé sú, að það taki sinnaskiptuin og bæti ráð sitt i sið- legum efnuni. Hann heldur þó ekki, að trúarbrögðin geti orðið undirstaða undir þessu siðferði. En það telur liann, að immmitið muni fá áorkað, þrátt fyrir allar tilfinningar. Ella niuni illa fara. Símon Jóh. Agústsson ritar síðasta kafla bókarinnar. Er það ein af lengstu ritgerðunum. Viðhorf manna kveður liann mótast af venjum og sið- um, sem þeir fylgja oft, næsta um- hugsunarlaust. En bak við þetta hýr skoðun eða trú, sein á rót i persónu- legri reynslu. Lífsviðhorfið breytis1 eftir ytri aðstæðum og örlögum, svo og þroska manna. Sjálfur kveðst hann liafa verið trúaður unglingur, trúlaus á annað líf um allmörg ár (námsárin erlendis?), en nú virðist honum „varlegast að gera ráð fyrir báðum möguleikunum“. Honum er þ° óinögulegt að trúa neinu sem er gegn „öruggri þekkingu“. Liggur þvt

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.