Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Page 27

Eimreiðin - 01.07.1957, Page 27
KONUNGURINN í ATOM 179 En á þessum degi, er konungurinn gekk meðal höfðingj- a*ina, sá hann, hvar öldungur einn stóð sér og fáskiptinn. Og hann varð undrandi að sjá svo þungbúinn mann á þessari stund gleðinnar. Þess vegna gekk hann til æðstaprestsins °g spurði um nafn hans og aðsetur. En æðstipresturinn hló við og sagði: — Þetta er meistari Talnaskólans í Kalis, Míþrades Kapía. Hann kennir ungmennum borgarinnar að þekkja gang himin- tungla. Hann kvað fara með nemendur sína um skóga og uierkur til að kenna þeim fánýta hluti. Annars hafa prestarnir tjað mér, að hann færi ekki fórnir sem aðrir menn, þó kvað hann vera mikill vinur dúfnasalans í borginni. hegar konungurinn hugleiddi orð æðstaprestsins, minntist hann þess, að í æsku hafði hann oft lieyrt kennara sína vitna td þessa hlédræga öldungs í Kalis. Því var honum eigi lítil forvitni að sjá hann hér kominn og heyra, hvað hann hefði frá sjálfum sér að leggja til þessa fagnaðar. °g konungurinn lét kalla öldunginn fyrir sig og mælti: — Hví ert þú svo þungbúinn og liví talar þú ekki, maður frá Kalis? Feður þínir voru hingað komnir frá hinu mikla Hndi, sem er fyrir sunnan súlur himinsins; en þeir höfðu djarfari tungu og bjartari lit en aðrir menn. há gekk öldungurinn fram, lyfti ásjónu sinni til auglitis Vlð hinn mikla konung og mælti: ~~ Herra, þessa dæmisögu sagði Faðir Talnaskólans uppá- halds lærisveini sínum á sólstöðuhátíðinni, er hann spurði um Veginn, Upphefðina og Hið Góða. Meistarinn sagði: Gakk út úr húsi þínu og seg nágranna þínum hið illa, og hann mun trúa þér. Og næst, er þú gengur fram hjá húsi hans, mun liann benda út um gluggann og segja við gesti sína: Sjá, þar gengur hinn vitri maður, hann, sem þekkir ljónið °S sjakalann. Og orð þitt nmn spyrjast um strætið, frá munni tjaldgerðar- mannsins til eyrna fiðlarans. Og á kránni mun fiðlarinn segja 's°gur um vizku þína. Og hvert sem þú ferð, mun orðstír þinn þangað kominn. Og áður en þú veizt, mun hann hafa greitt götu jn'na að hásætinu. En á leið þinni til Húss hinna

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.