Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Side 31

Eimreiðin - 01.07.1957, Side 31
KONUNGURINN í ATOM 183 því að slíkt er mikið vanþakklæti, þegar þess má vænta, að kráðum rigni gulli í landi Amíta. En fólkið spurði: — Þér helgu menn, hvort mun það gull svala þyrstu korni °g skrælnuðum skógi? Og þér vísu prestar, hefði eigi verið Þetra sonunr vorum, að grafa áveitur um landið, svo að komið Wætti þroskast og bera ávöxt, heldur en að grafa fallna menn °g dauða meðal heiðingja? Svo liðu dægrin í löndum fjarri. Það var á einum aftni, er konungur Amíta gekk til hvílu, að hann gat ekki sofið. Eigi var það grátur hinna særðu né tar hinna munaðarlausu, er hélt fyrir honum vöku; hitt lá honum þyngra á hjarta, að ekki alls fyrir löngu hafði hann tekið til fanga ungan mann í þessu landi. Og er hann spurði handingjann að því, hve lengi hann héldi að þjóð hans gæti Vanzt þessum óvíga her, svaraði fanginn: — Vér erum ekki þjóð, heldur sem hafið og himinninn. Þetta þótti konunginum undarlegt svar, og hann mælti: ~~ Þú ert dulur og orðvar af svo ungum manni að vera, °g því mætti ætla, að einhver rök fylgdu máli þínu. Og þá svaraði fanginn: ~~ Þótt konungurinn bregði sverði sínu í hafið, sér ekki högg á því eftir andartak, og þótt konungurinn kljúfi loftið með lensu sinni, rennur það saman fyrr en auga á festir; þannig erum vér sem hafið og himinninn. A þessum aftni reis konungurinn úr rekkju og gekk út í n°ttina, því að hann gat eigi sofið. Og hann hugleiddi öll þau herbrögð, er leitt höfðu til sigurs á þessari löngu för. ^g þegar hann hugsaði um hinn langa veg, sem hann hafði farið, leit hann til himins og sá, að hvolfið var rautt sem blóð. þeirri stundu varð hann dapur, og hann minntist með trega landsins og þjóðarinnar, sem verk feðranna höfðu gefið stað- ,estu. En þegar hann gekk urn herbúðirnar, sá hann, að liðið Vakti og horfði til himins. Og hann undraðist hina miklu bytrð, því að svo fálátir höfðu menn hans eigi fyrr verið. En Pegar hann gekk inn í foringjatjaldið, var herráðið þar fyrir, °S er þeir sáu hann, varð þögn meðal þeirra. Þá spurði kon- Ungur Amíta:

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.