Eimreiðin - 01.07.1957, Page 47
ÚR FREMRIBYGGÐ OG TUNGUSVEIT
199
verið ferjaðir áður. Karl einn úr Nesinu var í ferjunni. Sat
úann á hestbaki alla leið, og var hestur lians alveg óhræddur.
Þetta var mikið ævintýri. Bezt man ég eftir hinum íturvaxna
ferjumanni, Jóni Magnússyni.
Reiðgöturnar yfir Hegranesið lágu fram með sjónum, er
austur yfir kom, neðan við Keflavík. Eru þar háir klettar með
''jónum. Þótti mér undarlegt, hve sjórinn var mislitur, grænn,
blár og mórauður í stórum spildum. Sólskin mikið var þá um
daginn. Glampaði á bæjarþil í Viðvíkursveit og Óslandshlíð,
svo og húsin í Kolkuósi, Grafarósi og Hofsósi. — Fyrir mér
var þetta allt nýr og merkilegur heimur. Svo var riðið fram
hjá gamla þingstaðnum Garði, þar sem Grettir eitt sinn
glímdi. Sást þar enn móta fyrir búðatóftum. Var ekki laust
við, að mér fyndist það heilagur staður, enda fornkappar í
l'ugum bama á þeim tímum eins og samtíðarmenn,- svo mikið
v°ru íslendingasögurnar, hinar merkari, lesnar og lærðar. Tal-
aði fólk um Gunnar, Njál, Gretti, Kjartan, Skarphéðin,
Snorra goða og aðra slíka eins og það væru kunningjar í næstu
sveit, og engu líkara en þær Hallgerður og Bergþóra væru
húsfreyjur ennþá á næstu bæjum. — Sturlungar voru mikið
fjarlægari í hugum almennings og barna, svo og 15. og 16.
aidar menn, nema Hallgrímur Pétursson og Jón Vídalín
ðiskup — og jafnvel Brynjólfur biskup og hans samtíðarmenn,
sem miklar sögur fóru af.
Var nú haldið áfram ferðinni fram að Ási. Þar var þá Ólafur
‘Sigurðsson, áður alþingismaður (f. 1822). Mun liann þá hafa
verið hættur búskap að mestu leyti og hafa fengið sonum
sinum, Guðmundi og Gunnari, hina miklu jörð. Þar voru
[°g eru enn 1956) tvö stór timburhús, og bjó sinn bróðirinn
i hvoru húsi, Guðmundur (d. 1954, yfir 90 ára gamall) í neðra
iiúsinu, Gunnar (dó um fertugt árið 1900) í efra húsinu. Þar
bjó og Ólafur og kona hans, Sigurlaug. Ólafur var þá 72 ára,
en Sigurlaug 6 árum yngri (f. 1828). Þetta heimili var rómað
um allt land og þó einkum um Skagafjörð. Var Ólafur sveitar-
i'öfðingi, jarðabótamaður mikill og hafði fyrstur manna byggt
bmburhús þar um slóðir. Stendur það enn og er nú bráðum
100 ára. Síðar byggði hann annað, er hann skipti jörðinni
"nlli sona sinna, en elzti sonurinn, Sigurður, fékk Helluland,