Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Page 65

Eimreiðin - 01.07.1957, Page 65
LANDIÐ MITT OG LANDIÐ YICKAR 217 vöxt á vegum háskólanna vestan hafs, er bókaútgáfa. Eftir því sem kostnaður við bókaútgáfu hefur færzt í vöxt og al- mennir bókaútgefendur orðið tregari á að prenta og gefa út bækur, sem ekki seljast í gríðarstórum upplögum, hafa fleiri °g fleiri háskólar tekið að sér útgáfu bóka, sem teljast til merkra rita án þess að geta gefið arð. Þeir háskólar, sem nú fást við slíka bókaútgáfu, hljóta að vera að minnsta kosti eitt hundrað að tölu, og þeir gefa út nokkur hundruð bæk- 11 r á ári hverju. Venjulega eru þetta bækur, sem ritaðar hafa verið af háskólakennurum, en eiga þó erindi til fólks utan hins tiltölulega þrönga hrings sérfræðinga. Þess gerist ekki þörf fyrir mig að lýsa frekar starfsemi þess- ara menntastofnana. Þær ná ekki aðeins til þessara alvarlegu °g ntenningarlega mikilvægu atriða, heldur og til hinna létt- ari hliða daglegs lífs, svo sem íþrótta og annarra félagslegra skemmtana. Jafnvel þar er um að ræða nokkurt mennta- Sbdi, þar sem háskólar okkar leggja einnig stund á að kenna nemendum sínum þá list að búa og lifa saman innan þess lamma, sem þjóðfélagið markar þeim. Fyrir síðustu heimsstyrjöld var lítið samband millum ís- lands og þessa hluta hins bandaríska þjóðfélags. Eins og Vamta mátti héldu íslenzkir stúdentar til Evrópu, aðallega hlanmerkur, og hugsunarháttur þeirra mótaðist sem von var at því, sem þeir lærðu þar. Þegar sambandið við Evrópu ^nkaðist árið 1940, sótti fjöldi íslenzkra stúdenta nám við háskóla í Bandaríkjunum. Mér er í fersku minni, þegar fyrstu lslenzku stúdentarnir komu til Madison í Wisconsin árið 1941. hað var mjög ánægjidegt og dýrmætt tækifæri, sem ’nér þá veittist, til að kynnast í fyrsta skipti afkomendum þeirra Egils Skallagrímssonar og Jóns Arasonar. Þeir komu hl okkar til þess að nema landbúnaðanu'sindi, læknisfræði, hagfræði, efnafræði, og þeir hurfu aftur heim og fluttu þá Ultð sér nýja og dýrmæta kunnáttu, sem orðið hefur þeim og bðium til gagns hér á landi. Einn þeirra, sem nú er vel þekkt- Ur maður hér á landi, sagði við mig um daginn, að þau ár, ^em hann var við nám í Wisconsin, hafi verið einhver hin amingjusömustu í lífi sínu. Síðan styrjöldinni lauk, hefur

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.