Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Page 66

Eimreiðin - 01.07.1957, Page 66
218 EIMREIÐIN tala íslenzkra stúdenta, sem stnnda nám vestan hafs, minnk- að mjög, og ástæðan er sii, að það er tiltölulega dýrara að sækja nám í Bandaríkjunum en á meginlandi Evrópu. Það er ósk min og von, að þessi lækur þorni ekki alveg, því þetta samband er mjög dýrmætt. Þegar þetta unga fólk kemur aft- ur heim, er það ef til vill vinir Bandaríkjanna, og ef til vill ekki. En hvað sem því líður, þá hefur þetta námsfólk að að minnsta kosti l'engið tækifæri til þess að komast í samband við hinar betri hliðar amerísks þjóðlífs, og ekki getur hjá því farið, að það hafi liaft sín áhrif á það. Hversu gagnleg sem þessi stúdentaskipti reynast, eru þau þó frekar óákveðin og sundurleit, og koma þyrfti á varan- legra fyrirkomulagi til þess að fylla í skörðin. Mér virðist tími vera kominn til þess að atliuga gaumgæfilega, hvað hægt er að gera til þess að korna á nánara samstarfi millum Háskóla íslands og eins eða fleiri háskóla í Bandaríkjunum- Öll ytri aðstaða er fyrir ltendi, þar sem Háskóli íslands hef- ur þegar tekið við allmörgum sendikennurum frá öðrum löndum og flestir þeirra njóta launa frá viðkomandi lönd- urn. Öll Norðurlöndin og Þýzkaland ltafa slíka sendikenn- ara hér. Því þá ekki einnig Bandaríkin? Hin Norðurlöndin öll, sérstaklega Noregur og Svíþjóð, hafa komið á fót inn- an vébanda liáskóla sinni föstu kennslukerfi í amerískum fræðum, þar sem stúdentar geta lagt stund á amerískar bók- menntir og sögu sem hluta al námi þeirra í enskri tungu. Það er von mín, að ef heimsókn mín hingað á eftir að bera einhvern varanlegan árangur, þá verði hann sá, að há- skólanum í Reykjavík verði gert kleift að taka á móti amerísk- um sendikennara. Slíkur kennari mun, á sama hátt og ég. ekki einungis fá sérstakt tækifæri til þess að kenna, heldm' og til þess að læra. Hann getur fært íslandi, og á hinn bóginn Ameríku, þann boðskap, sent útilokar hið einskisnýta og nær niður til hinna dýpstu róta og hinna hæstu ávaxta þeirra menningarstofna, sent Iionum er ætlað að tengja saman. Hann gæti notað hluta af tíma sínum til þess að læra tungu, sem óx upp af sömu rótum og hans eigið móðurmál, þótt á gjdr' ólíkan hátt væri. Ilann mun fá tækifæri til þess að kynnast

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.