Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Side 70

Eimreiðin - 01.07.1957, Side 70
EIMREIÐIN Vaki ég yfir velli grœnum vökulanga sumarnótt. Allt er i svefni inni í bœnum, úti í sumarþýðum blænum sefur lamb i lautu rótt. Vaþþa með mér völur falar, vakrir skeiða gœðingar. Hófar dynja, hlymja balar. Hörþudiskur glettinn talar við digrar meyjardopþurnar. Vökudyggir vinir góðir: völur, leggir, horn og skel, hörpudiskar hýru-rjóðir, hrifuskafta fákar móðir. Lifið þið blessuð, lifið vel. Vaki eg á vertiðinni vökukalda hryssingsnótt, nceðir oftast napurt inni i norðangarði i sjóbúðinni, þá er fœstum rekkjurótt. Kalt er að beila kindagömum, klakasíld og öðuskel i verbúðunum veðurbörnum og vosbúnaði kuldagjörnum, meðan úti jálma él. Heyri ég ennþá hrannir stynja, hnitbjörg duna feigðaróm, boða-skafla-bólstra hrynja, brotsjóa við þiljur drynja margrar fleytu dauðadóm.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.