Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1957, Page 76

Eimreiðin - 01.07.1957, Page 76
228 EIMREIÐIN langt, að því var á endanum skipt hér um bil í tvennt og lyrri lielm- ingur þess gefinn út sem skáldsag- an Of Tirne and the River, sem af mörgum er talin bezta verk höfund- arins. Bréf Wolfes glitra mörg af fyndni og húmor. Hann ferðaðist mikið víðs vegar uin Evrópu, og í einu bréfi sínu frá Frakklandi til vinar síns vestra segir hann frá því, er hann var í flugvél yfir Rhonedaln- um í 3000 feta hæð og sá úti á engi „svolítinn kvikan púnkt, sem var að moka mykju: þetta líktist svo mikið gagnrýnanda, að ég lief ekki getað lokið við bréf mitt síð- an.“ Þegar fyrsta bók Wolfes kom út, ætlaði allt um koll að keyra í fæð- ingarbæ hans, Asheville í Tennes- see-fylki, og átti liann í stöðugum erfiðleikum við skyldfólk sitt og vini, sem fannst hann hafa hagað sér óheyrilega, nteð því að nota þá sem fyrirmyndir í bókinni. Wolfe sjálfur og hinn samvizkusami og hógværi ritstjóri útgefandans, Perk- ins, sem síðar varð góður vinur höfundarins, voru önnum kafnir við að útskýra það fyrir einum og öllum, að rithöfundurinn gæti ekki komizt hjá því að sækja efniviðinn í verk sín í eigin lífsreynslu og nota lifandi persónur sem fyrirmyndir, en er Perkins las handritið af ann- arri bók Wolfes, varð hann æfur, er hann sá sjálfan sig og samstarfs- menn sína lijá útgáfufyrirtækinu krufna til mergjar með hinu óhlífna málfari höfundarins. I.oks kom að Wolfe sjálfum í þessu til- liti, þegar Aline Bernstein, sem var ástmey hans um langt árabil og þó mörgum árum eldri en liann, gaf út bók sína Three Blue Suits, sem inniheldur allberorðar lýsingar á ástamálum þeirra. Nú brá Wolfe við alveg eins og hann væri eitt af sínum eigin fórnarlömbum og skrif- aði Aline bréf, þar sem liann kvart- ar yfir því, að „bókin verði hand- fjötluð og strokin, og hvískrað verði um hana af maðkétnum litlum inanngörmum, sein stöðugt þurfi að reka nef sitt í alla hluti, leita að fyrirmyndum og gleðjast yfir . • • hneykslanlegum smámolum". 'Fhomas Wolfe bergði af lirunni lífsins af óvenjulegri áfergju, eins og hver dagur væri hans síðasti, eins og hann væri sér þess meðvit- andi, að ævi hans myndi ekki verða löng. Bréfin lýsa innri baráttu skáldsins, vonum þess, örvæntingu og sköpunarofsa á heillandi hátt, og við lestur þeirra lær maður nuk þess óstöðvandi löngun til þess að kynnast skáldverkum eins mesta ritsnillings þeirra Vestanmanna enn betur en áður. í sumar kom svo út vestan liafs annað safn bréfa, sent annar jöfur á sviði skáldsagnagerðar liefur látið eftir sig, en það var írinn James Joyce, sem er gjörólíkur Wolfe i eðli sínu og hegðan allri og afstöðu til lífsins, en olli eigi að síður a sínum tíma mikilli ólgu með verk- um sínum, ekki sízt Ulysses, sem sumir segja að hafi bjargað skáld- sögunni við sem listformi, en aðrir halda því fram, að með þeirri bók hafi liann nærri gengið af ensku skáldsögunni dauðri. Margir virðast sammála um, að minning Joyce, sem var geysilega óvæginn í skrifum sínum og stund-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.