Eimreiðin - 01.07.1957, Síða 77
ERLENDAR BÓKAFREGNIR
229
um jafnvel hatursfullur, muni ekki
lifa á einkabréfum hans. í þeim
virðist hann koma fram sem ró-
lyndur og stundum smásmuguleg-
ur heimilisfaðir, umhyggjusamur
uin hag fjölskyldunnar og kannski
dálítið masgjarn. En ekki dregur
þetta þó úr ánægjunni af lestri
bréfanna.
Fáir rithöfundar munu ltafa átt
við meiri örðugleika að stríða en
James Joyce. Hann varð að berjast
við heilsuleysi, einkum sjóndepru,
dllitsleysi, fátækt og bullandi fá-
vizku. Þetta kernur hvað skýrast
franr í bréfum hans. Smásagnasafn
Fans, Dubliners, gekk á milli 40 út-
gefenda, og enginn vildi taka það
til útgáfu. Ulysses var bönnuð í
Fretlandi á þeim forsendum, að
hún væri klámrit. Einnig var lengi
vel komið í veg fyrir, að bókin gæti
Foniið út í Bandaríkjunum, en síð-
ar meir stálu amerískir útgefendur
útgáfuréttinum og skirrðust við að
greiða Joyce höfundarlaun. Finne-
gan's Wake varð fyrir hatrömmum
árásum, og H. G. Wells, enski rit-
itöfundurinn, lét svo ummælt, að
úókin væri rituð af „vitleysingi
þ'rir vitleysingja". Nú er öldin önn-
Ur °g almennt litið á Joyce sem
þann mann, er valdið liefur ein-
nverjum mestu straumhvörfum í
sðgu skáldsagnagerðar. Síðustu ár
‘t'vi sinnar naut hann einnig sjálf-
ur viðurkenningarinnar og vinsæld-
anna, en hann lézt í borginni Zii-
rith í Sviss árið 1940.
^ septembermánuði s.l. kom út í
Fandaríkjunum l)ók, sem þegar í
stað vakti geysimikla atliygli og
avann höfundinum mjög auknar
vinsældir. Höfundur Iiennar hefur
um nokkurt árabil mátt teljast til
fremstu núlifandi skáldsagnahöf-
unda Bandaríkjanna, en er þó lítt
eða ekki kunnur hér á landi. Þetta
er James Gould Cozzens, og nefnist
bók hans By Love Possessed, sent
á íslenzku mætti kannski kalla /
ástarviðjum.
Stærsti bókaklúbbur vestan hafs,
Book-of-the-Month Club, valdi bók-
ina þegar í stað til útgáfu, og í
mánaðarriti klúbbsins ritar Clifton
Fadintan umsögn um bókina og
höfundinn, þar sern segir meðal
annars:
„Því hefur oft verið haldið fram
um bandaríska skúldsagnahöfunda,
að þeint gangi illa að halda uppi
styrkleika sínum og krafti, vaxi
ekki jafnt og þétt af verkum sín-
um. Algengara sé, að þeir hefjist
hátt í upphafi rithöfundarferils
síns, en staiuli síðan í stað eða fari
jafnvel aftur, eins og átti sér stað
urn Sinclair Lewis. Ýmsar ánægju-
legar og livctjandi undantekningar
má þó finna frá þessari reglu, og
sú þeirra, sem teljast má einna
glæsilegust og skín hvað skærast, er
James Gould Cozzens, sem með síð-
ustu bók sinni, I astarviðjum, lilyt-
ur að teljast til sex fremstu rithöf-
unda samtíðar sinnar í Bandaríkj-
unum. Að dómi bókmenntaráðs
klúbbsins er jietta eitt hið Jmoskað-
asta og merkilegasta skaldverk, sem
þeir hafa getað boðið meðlimunum
upp á um langt árabil , og ætti
þetta að vera allþungt á metunum,
því að f þessu bókmenntaráði eiga
sæti menn, sem standa mjög framar-
lega í stétt rithöfunda og gagnrýn-
enda í Bandarikjunum.
Arið 1948 hlaut Cozzens Pulitzer-