Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 73

Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 73
!‘Afí ER EIXHVER Afí KOMA 63 eð eldavélar voi u þá fágætar, nema þá helzt á heimilum embættis- manna. Flest lieimili urðu því að notast við hlóðaeld og baka eða steikja ylir þeim eldi það, sem til- tækilegt var þannig að gera í því efni. Maðurinn afþakkaði mat, sagðist hafa haft í töskunni dálít- ið nesti, er hann liafði tekið til og bitið á göngunni, þegar hann fann að hann var farinn að fara villur vegar. Á þeim árurn var eng- inn vegur á milli Keflavíkur og Hafnarfjarðar, aðeins misglöggar slóðir, sent mest voru mótaðar af fótum hesta, að undanteknum Vogastapa og Kapelluhrauni eða Nýjabruna, þar sem Álverksmiðj- an á að vera. Enginn mun vita, hvenær eða hverjir voru þar að verki við þær vegabætur. Maður- inn sagði, að þæfings ólærð hafi verið alla leiðina, en þó aukist eltir því, sent nær dró Hafnarfirði. Maðurinn sagði: „Þegar ég var á móts við Vatnsleysu, tók til að drífa í logni og virtist drífan verða þéttari og stærri el'tir því, sem inn- :*i' dró. Allt varð ein þvkk, hvít v°ð og mjög blint. Allir götuslóð- ar horfnir, allt virtist jafnslétt, nema hæstu hraunhólarnir. Ég vissi, að ég var á réttri leið á með- an ég halði bæina til hliðsjónar til vinstri handar. Ferðin gekk þá all- vel, allt inn úr Kapelluhrauni, en l3á tekur við slétt og kennileita- laust Helluhraunið. Ég hef því far- að ganga helzt til mikið upp á hægri fótinn, sem sagt er að flest- unr verði á, sem fara villtir vegar. Éulla grein var ég búinn að gera mér fyrir því, að ég væri kominn nokkuð af réttri leið. Ég vissi þó af bænunt upp við fjallið og ætl- aði að ég næði honum áður en langt liði, en ég hel alltaf gengið of mikið upp á hægri fótinn. Loks komst ég út úr hrauninu og kom þá á sléttar flatir, að ég held. Þeg- ar sléttan þraut, kom ég að nokk- urri hæð, þar sent bunaði lítill lækur fram milli melhryggja eða smá hæða. Ég var algjörlega róleg- ur og var vel búinn, þurr á fótum og höndum, og treysti mér því að halda á mér hita, svo fremi að veður ekki kólnaði að mun og frostið stigi að ráði. Ég ætlaði þá ekki að fara lengra svona villtur, heldur bíða unz unp birti eða veð- ur nokkuð breyttist. Ég síg áfram nteð læknum í þessum lnigleiðing- um um heldur einmanalega jóla- nótt og er þá allt í einu kominn á rnikinn troðning eftir fjárhóp og spor fullorðins manns og unglings. Það glaðnaði yfir mér, þar eð ég vissi þá, að héðan í frá gæti varla verið langt til bæja og brautin ný- gengin, svo nýlega, að ég gat greint í hvaða átt brautin lá. Mér varð létt um gang, þar eð nú hafði ég nýtroðna braut, svo að villu minni væri þar með aflétt. Að tæp- lega hálfri stund liðinni kom ég að túngarði og sá þá samstundis móta fyrir bænum, og nú er ég hér.“ Móðir mín bauð manninum, hvort hann vildi hvílast þar, sem hann var kontinn, og halda jóla- kvöldið með okkur. Hann þakkaði móður minni með mörgum fögr- um orðum hennar ágæta boð og sagðist gjarnan hefði viljað og mátt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.