Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 78

Eimreiðin - 01.01.1968, Blaðsíða 78
68 F.1MREIÐ1N henni til dýrðar. Eg sagði einn dag við Lillie rétt íyrir afmælið hennar: — Veiztu hvað eg kalla gang þinn, þegar þú kemur á móti mér? Hvítagaldur kalla eg gang þinn. — Hvítagaldur, endurtók hún og undi sér við orðið. Hvað það mundi eiga ljómandi vel við hvíta kjólinn, sem eg hef fund- ið hjá Stern Brothers. I afmælis- gjöf, ha? Hann kostar ekki nema 199 dollara og 85 cent. Og eg var liiminlifandi! Hvaða maður í víðri veröld átti konu, sem gat svarað með jafn- hagsýnu snarræði. Var Jrað ekki guðlast að kalla hana fákæna? Hvað er það annað en hrottalegt karlmannsæði að vilja sprengja hina unaðslegu umgerð kven- leikans með bugandi vitsmun- um. Sumar konur hafa aðdáanlegt lag á að leyna sínum fátæka anda bak við blekkjandi hlédrægni. Lillie var langt of hreinskilin að tðlisfari til að geta það. Mér blæðir að þurfa að segja það, en þessi tilhneiging til að vera hreinskilin gerði hana stundum ofurlítið lausa við að vera nær- færin. Eg var meðalmaður á vöxt, með stórt nef, og liður á því miðju. Einn dag, þegar eg kraup á kné með höfuðið í kjöltu minnar dýrmætu lállie, strauk hún hár mitt og vanga með allri viðkvæmni jarðneskrar blíðu, lyfti upp höfið mínu, leit inn í augu mér og sagði: — Þú hefir nú ekkert klassiskt nef. Eg rauk upp, með hvassan broddinn af orðunum á kafi inni í mínu hégómagjarna hjarta. En eg var ekki fyrr stað- inn upp en Lillie sagði: — Bara þú værir tveim Jnuml- ungum hærri. Mér hefir alltaf verið hugleikið að giftast manni, sem væri hár og föngulegur. Því maður, sem er ekki hár, getur ekki verið föngulegur. Eg þekki menn, sem mundu hafa kunnað að svara. Ef til vill ekki með orðum, heldur með — — ja, eg á við lirottalega eigin- menn, sem mundu hafa farið að ,,ala hana upp“, eins og þeim líkar að orða Jjað. Mér blöskrar að hugsa til, að Lillie hefði ver- ið gift slíkum manni. Mér datt í hug eitt augnablik að biðja hana um að lesa Schop- enhauer. Lesa um hin lífeðlis- fræðilegu rök, sem hann leiðir að því, að stórgáfaðir menn séu sjaldan stórir vexti. En eg var of lítillátur til að brúka svo djörf orð um sjálfan mig. í stað þess að biðja hana um að lesa Schopenhauer, þaut eg beina leið niður í skóarabúð og pantaði tvær tylftir af aukahæl- um á allan minn skófatnað, tvær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.