Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1974, Page 59

Eimreiðin - 01.09.1974, Page 59
EIMREIÐIN ig, hann leggur líf sögupersónanna við hliðina á lífi lesandans. Eitthvert bezta dæmi um slíkar bókmenntir er að finna hjá bandaríska skáldinu John Updike, (sem hlaut National Book Award árið 1964). Við fyrstu sýn virðast sögur hans vera ein- faldar og nákvæmar sögur úr hversdagslífinu. En við nánari könnun kemur í ljós, að skáldið er ekki að skrifa um hinn lá- rétta veruleik eingöngu. Hann teflir honum aldrei fram án þess að setja hinn lóðrétta skilning við hliðina eða á einhvern þann stað, þar sem lesandinn verður að horfast í augu við sjálfan sig og líf sitt á sálarspegli höfundarins, sögunni. Reynd- ar má segja þetta sama um flestar góðar bókmenntir, enda þótt viðhorf höfundarins sé misjafnlega augljóst. Ólafur Kárason Ljósvíkingur er dæmi um tákn fyrir þann, sem hefur upplifað einhvern lóðréttan veruleik og á í vök að verjast í viðskiptum sínum við liinn lárétta lífsskilning um- hverfis sig í mannlífinu. Hið raunverulega innihald lifs hans grundvallast á eins konar opinberun: „kraftbirtingarhljómi guðdómsins“, sem reyndar er harla óljós ómur og innihald þess tákns óljóst skilgreint. Þó kemur innihald þess fram m. a. í þessari klausu: Ólafur Kárason á ósýnilegan vin, sem aungvum mun nokkru sinni takast að nefna, hann gerir ekki aðeins tilfinninguna þeim mun ljósari, sem borin eru á manninn hvassari vopn, heldur ber hann lífsstein að hverju sári. (Heimsljós II. bls. 191). „Sem aungvum mun nokkru sinni takast að nefna“, þessi ókunni guð minnir á grisku skáldin, sem Páll postuli talaði lil á sínum tíma, en meðal þeirra sá hann mörg ölturu, og einkum var eitt þeirra mikilvægt. Það altari var merkt „ókunn- um guði“, og virtust flestir færa þvi fórnir. Páll sagði við þá: »,Sá guð, sem þið tilbiðjið óafvitandi er sá guð, sem ég hoða ykkur“. Hvað sem því líður, þá er vart hægt að verjast þeirri hugsun, að Ólafur Kárason sé eins konar dauft endurvarp (tákn?) mannsins frá Nazaret, sem liefur borið lífstein að hverju sári kristinna manna gegnum aldirnar og jafnvel að sárum þeirra, sem ekki tilheyra kirkju hans. Kristur er kraft- ur lífsins gagnvart dauðanum, „hestaflið í almættinu". Sá veru- leiki, sem snart Ljósvíkinginn lóðrétt og gerði hann að þessum krossbera í heimi hins lárétta og hrjáða mannlífs, er ef til vill skýrður með orðum dómkirkjuprestsins, sem heimsækir liann í tugthúsið:

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.