Ægir - 01.11.1953, Blaðsíða 10
264
Æ G I R
Hluti af aðalefna-
rannsóknarstofu.
Til vinslri á mynd-
inni er tœki til
fjöldaákvarðana á
eggjahvílu í fisk-
mjöli.
er margt sameiginlegt í flestum greinum
fiskiðnaðarins.“
„Hvernig er starfseminni háttað nú?“
„Á vegum Rannsóknarstofu Fiskifél. ís-
lands vinna nú tveir sérfræðingar auk mín,
en þeir eru Júlíus Guðmundsson og Geir
Arnesen, og enn fremur ein aðstoðarstúlka.
Leyst hefur verið af hendi margvislegt leið-
beiningarstarf á því ári, sem liðið er síðan
flutt var í hið nýja húsnæði. Þannig hefur
einni verksmiðju sunnanlands verið veitt
aðstoð við undirbúning að soðkjai’navinnslu.
Tveir aðilar hafa notið aðstoðar við nýbygg-
ingu og endui’byggingu lifrarbræðslna og'
einnig liefur verið veitt aðstoð við nýbygg-
ing|u saltfiskþurrkara. Einn af sérfræðinguin
rannsóknarstofunnar tók þátt í rannsókn, er
framkvæmd var á síðastl. sumri að tilhlutan
ríkisstjórnarinnar, á starfsháttum og útbún-
aði hraðfrystihúsanna og fi-amkvæmd fisk-
matsins á rnati hraðfrysts fisks. Af sjálfstæð-
um verkefnum, sem unnið hefur verið að,
má nefna rannsóknir á gulu í saltfiski, en
eins og kunnugt er veldur gulan tilfinnan-
legu tjóni á hverju ári. Þá hefur verið unnið
að tilraunum, sem miða að hagnýtingu fisk-
slógs, en það fellur til í þúsund smálesta tali
á ári hverju og er ekki hagnýtt nema að litlu
leyti. Loks má geta þess, að rannsökuð hafa
verið um 1300 sýnishorn af framleiðslu og
hráefnum fiskiðnaðarins það sem af er þessu
ári. En eins og kunnugt er byggist sala á
miklum hluta framleiðslu fiskiðnaðarins,
eins og lýsis og mjöls, á efnagreiningum, en
langmestur hluti þeirra er framkvæmdur í
Skrifstofa og bókasafn.