Ægir - 01.11.1953, Blaðsíða 31
Æ G I R
285
Síldveiðin á Grundarfirði.
í októbermánuði síðastliðnum töldu sjó-
menn í Grundarfirði sig yerða vara við síld
öðru hvoru. Hún óð ekki og fékkst heldur
ekki í net, en hins vegar varð vart við hana
á dýptarmæla. Seint i mánuðinum kom varð
skipið Ægir inn í fjörðinn og fann þá síld
með hinu nýja acdic-tæki sínu. Lagði hann
þá nokkur net, en í þau fékkst engin síld, og
hvarf hann þvi á hraut við svo búið. Um
mánaðamótin okt.-nóv. ætlaði m/b Arnfinn-
ur að reyna að fiska þorsk í lierpinót. Áður
en reynt væri við þá veiði, fann báturinn síld
í Grundarfirði þann 3. nóvember og fékk þá
á skömmum tíma 863 mál, sem voru lögð á
land í Stykkishólmi daginn eftir.
Þegar þessar fregnir bárust, töku útgerð-
armenn þegar að búa skip til herpinótaveiða
í Grundarfirði, einkum á verstöðvum við
Faxaflóa og á Snæfellsnesi. Nokkur skip
komu einnig til veiða frá Vestfjörðum og
Norðurlandi.
Mikil útþensla hefur orðið í veiðum í
vötnum. Þær veiðar fara aðallega fram í
Dónárósum, en þar búa 10 þús af þeim 18
þús. fiskimönnum, sem eru í Rúmeníu. Þeir
veiða styrju og sild, sem leita inn í ósinn til
þess að hrygna eða afla sér fæðu. Einnig
veiða þeir makríl.
Frá þessu svæði kemur 90% styrjuaflans
og 80% sildaraflans í Rúmeníu.
Nú eru gerðar tilraunir til þess að auka
heildaraflann með því að byggja stíflugarða
og grafa síki, þar sem vatnið safnast fyrir
og þannig stækka hrygningarstöðvarnar. —
Einnig fer þar fram fiskklak, einkum á sil-
ungi.
I sambandi við hinar miklu vatnsvirkjanir
í Rúmeníu munu myndast 100 þús. fermílna
vatnsþrær við Neðri Dóná. Úr fjórða hluta
þessa svæðis munu fást um 50 kg. af fislci
á fermílu á ári. Með þessum stiflugerðum og
með vísindalegri skipulagningu fiskveiðanna
er búizt við, að úr Dónárósum megi fá árlega
12 — 15 þús. smál. af fiski.
Síldin reyndist vera svokölluð kópsild, 15
-—25 cm löng og fitumagn hennar mældist
13—14%. Um skeið var ágæt veiði í firðin-
um, en tregaðist fljótt, þá er veiðiskipum
fjölgaði, enda var veiðisvæðið mjög lítið.
Talið er, að um 40 skip hafi farið til veiða
i Grundarfjörð, en aflaskýrslur bárust frá
35 skipum, sem öfluðu 33713 mál, og fór sá
afli allur í bræðslu á eftirtöldum stöðum:
Mál.
Verksm. Sig. Ágústssonar, Stykkish. 14008
Verksmiðjan í Ólafsvík............... 1798
Akranesverksmiðjan ................... 201
Síldar- og fiskimjölsverksm. í Rvík 10516
Lýsi og Mjöl, Hafnarfirði............ 7152
Fiskiðjan s.f., Keflavík .............. 38
Samtals 33713
Verksmiðjurnar munu flestar hafa greitt
kr. 60.00 fyrir málið, og hefur aflaverðmætið
til útgerðarmanna þvi verið um tvær millj.
króna.
Þessi afli varð því miður mjög dýrkeypt-
ur. í aftaka veðri aðfaranótt mánudagsins
16. nóvember hvolfdi mótorskipinu Eddu frá
Hafnarfirði, þar sem hún lá fyrir akkerum
skannnt frá bryggju í Grafarnesi. Upp úr
þessu ofviðri varð ekki frekar um síldveið-
ar í Grundarfirði.
Fiskibátar til sölu.
Ef þér hafiá í hyggju aá kaupa skip í Danmörku,
ættuá þér aá leita tilboáa hjá oss, hvort heldur um
nýsmíái eáa notaáan bát er aá ræáa.
Vér sjáum um allan útbúnaá til skipa og veitum
fyrsta flokks þjónustu.
Leitiá tilboáa.
Esbjerg Skipskommission.
Frú Folmer Christensen N.]. Poulsensvej 10. Esbjerg. Danmark.
Sími 1737. Símnefni: Realship.