Ægir - 01.11.1953, Blaðsíða 11
Æ G I R
265
rannsúknarstofu Fiskifélags íslands. Þá hef-
ur skapast mikil vinna í sambandi við verk-
un sildar fyrir markaði í Austur-Evrópu og
nú síðast í sambandi við meinta galla, sem
komið hafa fram á þeirri vöru.
Atvinnudeild háskólans heí’ur flutt gerla-
rannsóknirnar í hið nýja húsnæði rannsókn-
arstofunnar. Sigurður Pétursson og Sigríður
Erlendsdóttir vinna nú að þeim eins og áðui.
Mun starfssvið þeirra nú færast nær alger-
lega yfir á fiskiðnaðinn. Aðalverkefni þess-
ara rannsókna er nú sem stendur niðursuð-
an, og mun svo verða næstu árin. Hefur þeg-
ar verið tekin upp samvinna við eina niður-
suðuverksmiðju og þannig fengizt aðstæða
til margs konar tilrauna og rannsókná, sem
ekki var hægt að skapa sér hér fyrst um
sinn. Annað helzta verkefni gerlarannsókn-
anna hér eru ákvarðanir á B-Vítaminum í
ýmsum fiskafurðum. Hafa þegar verið gerð-
ar nokkrar slíkar mælingar, einkum á víta-
min B12. Auk þess eru svo enn sem fyrr
framkvæmdar liér almennar gerlarannsókn-
ir fyrir lieilbrigðisyfirvöldin og framleið-
endur.“
Að lokum sagði dr. Þórður Þorbjarnarson
þetta: „Vitaskuld tekur langan tíma að
hysgja upp rannsókna- og tilraunastofnun
fyrir meginatvinnugreiri þjóðarinnar. Að
sumu leyti er það heppilegt, að sú uppbygg-
ing sé ekki of ör. Af því, sem nú hefur verið
sagt, má vera ljóst, að rannsóknarstofnunin
við Skúlagötu á að vera miðstöð fyrir rann-
sóknir, tilraunir og leiðbeiningarstarfsemi
fyrir sjávarútveg og fiskiðnað.. Öll uppbygg-
ing þessara stofnunar er við það miðuð, að
liún verði sem hæfust, til þess að leysa af
liendi þau margvislegu verkefni, sem henn-
ar bíða.“
Reikningar Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
fyrir árið 1952 hafa nýlega verið birtir.
Hagnaður af togurunum, sem eru þrir, varð
kr. 196 650.20, þegar fyrning hafði verið
dregin frá. Hagnaður af fiskverkun og öðr-
um rekstri í landi nam kr. 1 022 594.22, þar
af á saltfiski kr. 460 668.05 og liarðfiski kr.
186 024.27. Alls greiddi útgerðin í vinnu-
laun á árinu kr. 6 009 634.51, þar af voru
Jaun skipverja kr. 4 321 491.91 og til verka-
manna í landi lcr. 1 688 142.00. Eignir Bæj-
arútgerðar Hafnarfjarðar í árslok 1952 voru
kr. 15 533 953.17, en skuldir kr. 9 399 953.62.
Eignir umfram skuldir voru því kr.
6 133 999.62.