Ægir - 01.11.1953, Blaðsíða 28
282
Æ G I R
Austfjörðum og Vestfjörðum, fyrir þyngstu
tegund brennsluolíu, svo að dreifingar-
líerfið sé sem fullkomnast. Telur fiskiþingið
eðlilegt og sjálfsagt, að olíufélögin komi
geymurn þessum upp.“
Bygging fiskiðjuvera.
„Fiskiþingið skorar á ríkisstjórn og Al-
þingi að styðja öfluglega bvggingar full-
kominna fiskiðjuvera, þar sem góð skilyrði
til fiskiðnaðar eru fyrir hendi og góðar
Lafnir.
Fiskiþingið leggur áhrezlu á, að á nokkr-
um stöðum, t. d. á ísafirði, sé um aðkallandi
nauðsynjamál að ræða og væniir, að Alþingi
og ríkisstjórn veiti málinu fyllsta brautar-
gengi.“
Landhelgismál.
„A. Fiskiþingið lýsir ánægju sinni yfir þeim
mikilsverða áfanga, sem náðst hefur í
Iandhelgismálinu siðan síðasta þing
Fiskifélagsins var haldið og þakkar
ríkisstjórninni, hvernig hún hefur hald-
ið á málstað íslands á þeim vettvangi.
Þingið lítur svo á, að ríkisstjórn ís-
lands beri að leggja höfuðáherzlu á
það, að verja þau fiskveiðitakmörk,
sem nú eru, og slaka þar hvergi til, en
að því beri að stefna, að íslendingar
helgi sér allt landgrunnið.
Þingið telur, að óhjákvæmilegt sé,
að íslendingar fái til umráða hrað-
skreitt eða hraðskreið gæzluskip, er
gangi allt að 20 sjómílur.
Meðan verið er að athuga, hvað bezt
hentar okkar staðháttum, tclur þingið
nauðsynlegt, að taka á leigu skip, sem
að minnsta kosti fullnægja framan-
greindum skilyrðum til landhelgis-
gæzlu.
Einnig telur þingið eðlilegt, að flug-
vélar verði teknar í þjónustu land-
helgisgæzlunnar.
Fiskiþingið leggur áherzlu á, að sjó-
menn á fiskiskipum og öðrum skipum
kring uni land, geti unnið þýðingar-
mikið starf fyrir landhelgisgæzluna,
með upplýsingum um landhelgisbrjóta
og beinir því til framkvæmdastjóra
landhelgisgæzlunnar, að gera sitt ítr-
asta til að notfæra sér aðstoð þeirra
í þessu starfi.
Þá leggur þingið áherzlu á, að til
starfa við landhelgisgæzluna veljist
eingöngu úrvalsmenn.
B. Fiskiþingið leggur áherzlu á, að ekki
færri en 5 skip sinni eingöngu björgun
og gæzlu veiðarfæra og aðstoð við fiski-
flotann kring um landið og telur eðli-
legt, að þessi skip verði fyrst og fremst
starfrækt á þeim grundvelli, en sinni
landhelgisgæzlunni aðeins, þegar þeirra
er ekki þörf við ofangreinda starfsemi.
Hins vegar verði stefnt að því, að
aðskilja sem mest landhelgisgæzluna
frá björgun og gæzlu veiðarfæra, en
hvort tveggja verði þó undir sömu
stjórn."
Húsbygging
fiski- og fiskiðnaðarrannsóknarstöðvar.
„Fiskiþingið mælir eindregið með því, að
framlengdur verði næstu fjögur ár núver-
andi tekjustofn, %% af útflutningsgjaldi,
til áframhaldandi byggingar rannsóknar-
stöðvar, og leyfi verði veitt samkvæmt um-
sókn byggingarstj órnar.
Telur fiskiþingið knýjandi nauðsyn á því,
að þessi fyrirhugaða bygging komist sem
fyrst upp, svo að þessari mikilvægu vísinda-
starfsemi verði sköpuð sem bezt starfsskil-
yrði.“
Frumvarp til laga um síldarleit.
„Fiskiþingið samþykkir að skora á Al-
þingi að samþykkja frumvarp þeirra Einars
Ingimundarsonar, þingmanns Siglfirðinga
o. fl. um síldarleit fyrir Norður- og Austur-
landi. Ennfremur leggur fiskiþingið til, að
hafðar verði minnst tvær góðar flugvélar í
síldarleit á svæðinu frá Látrabjargi og
austur um.
Flugvélarnar verði staðsettar á heppileg-
ustu stöðum, að fróðra manna dómi.“