Ægir - 01.01.1992, Síða 10
2
ÆGIR
1/92
Frjáls olíusala og flutningsjöfnun
Frá því hefur verið skýrt að í undirbúningi sé frum-
varp til laga um frjálsa olíusölu. Ekki veit ég hvaða
frelsi er ráðgert að veita umfram það sem þegar hefur
verið gert því að frumvarpið hefur ekki ennþá verið
lagt fram að því er ég best veit. Hins vegar hefur verið
skýrt frá því opinberlega að það hafi verið tekið til
umræðu í þingflokkum þeim sem standa að ríkis-
stjórninni og einn ráðherra hefur sagt álit sitt á einu
efnisatriði þess í viðtali við sjónvarp og þar að auki
hefur verið skýrt frá því í dagblaði að um þetta sé ekki
fullt samkomulag.
Það er einmitt þetta efnisatriði sem ég vil ræða hér.
Betra hefði verið að bíða þangað til frumvarpið hefur
verið lagt fram, en hins vegar er það ekki á hverjum
degi að ég skrifa í Ægi, þannig að ég kýs að fjalla um
þetta nú og vitna þá til þess sem ráðherrann sagði.
Þar að auki er oft betra að leggja orð í belg áður en
mál eru komin of langt.
Málið fjallar um að hætta flutningsjöfnun á olíu.
Olíuvörur yrðu ódýrari á fáeinum höfnum en annars
staðar á landinu ef hætt yrði að jafna flutningskostn-
aðinn. Fram að þessu hefur verð á olíuvörum verið
það sama alls staðar á landinu. Það hefur þótt eðlilegt
og sjálfsagt að allir byggju við sama verð án tillits til
búsetu. Ljóst er að ef þetta nær fram að ganga þreng-
ist mjög fyrir dyrum á smærri stöðum og gæti jafnvel
orðið dropinn sem fyllti mælinn. Ef olía í útgerðarbæ
verður dýrari en til dæmis á Akureyri eða Reykjavík,
er Ijóst að útgerðin þar stæði höllum fæti. Fyrr eða
síðar flytti útgerðin sig um set, þangað sem meiri
möguleikar væru á að þrífast. Þegar útgerðin er farin
er tilverugrundvöllur byggðarinnar að mestu horfinn.
En ráðherrann, sem áður var vitnað til hafði ekki
áhyggjur af þessu, enda hafði hann í sjálfu sér ekkert
á móti flutningsjöfnun. En hann sagðist engar
áhyggjur hafa af henni, olíufélögunum væri treyst-
andi til að annast sjálf flutningsjöfnun fyrir sína við-
skiptavini. Þetta er sjónarmið út af fyrir sig. En gallinn
er að það stenst ekki. Vissulega er olíufélögunum
treystandi til þess að jafna út flutningskostnað
olíunnar til sinna viðskiptavina. En málið fjallar ekki
um það. Það sem skiptir máli er að olíufélögin geta
ekki jafnað flutningskostnaðinn án þess að allir taki
sameiginlega þátt í þeirri jöfnun.
Gísli Ólafsson lætur af störfum
Eftir 35 ára starf hjá Fiskifélagi íslands lét Gísli
Ólafsson af störfum um síðustu áramót. Gísli hefur
starfað við hönnun og prófarkir Ægis þessi ár og eru
honum þökkuð heilladrjúg störf fyrir Ægi.