Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1992, Blaðsíða 32

Ægir - 01.01.1992, Blaðsíða 32
24 ÆGIR 1/92 tala steinbíts mælst frá 43 þús. tonnum 1985 niður í 27 þús. tonn 1988, en mældist nú 33 þús. tonn sem er svipuð tala og 1990, 29 þús. tonn, (16. mynd). Staðalfrá- vik vísitölunnar hefur verið tiltölu- lega svipað á tímabilinu, eða 10- 14%, en var 12% 1991. Undanfarin ár virðist steinbíts- stofninn hafa verið í jafnvægi. Margir árgangar hafa verið í veið- inni og litlar sveiflur í afla frá ári til árs. Sveiflur í stofnvísitölum má því ef til vill rekja til dægursveiflna steinbítsafla, en þær eru veruleg- ar, fremur en breytinga á stofnstærð. Skrápaflúra Af þeim botnfiskstofnum sem ekki eru nýttir að marki hefur skrápflúrustofninn mælst stærstur. Stofnvísitalan hefur verið frá 42 þús. tonnum árið 1989 til 62 þús. tonna árið 1986, en mældist nú 54 þús. tonn. Þessar vístölur gefa til kynna að hér sé um nokkuð stóran ónýttan stofn að ræða (16. mynd). Staðalfrávik er lægst af þeim tegundum þar sem reiknuð hefur verið stofnvísitala, eða 6- 8%, og er það í samræmi við nokkuð jafna útbreiðslu þessa fisks. Lokaord Togararallið hefur verið meðal verkefna Hafrannsóknastofnunar- innar í 7 ár. Enda þótt enn sé of snemmt að skera úr um endanlegt notagildi þeirra stofnmælinga sem verkefnið hefur skilað er þó Ijóst að þau markmið sem að var stefnt í upphafi hafa náðst að verulegu leyti. Aldursgreindar stofnvísitölur þorsks og ýsu eru þegar notaðar í mati á stofnstærðum þessara teg- unda, ásamt gögnum af öðrum uppruna, og hafa reynst mark- tækar stærðir. Mælingar á stærð uppvaxandi aldursflokka þorsks og ýsu er notaðar til að meta stærð þeirra árganga sem koma inn í veiðistofninn síðar og hafa gefið allgóða raun. Auk þess hefur sam- vinna fiskifræðinga, sjómanna og útgerðarmanna að þessu verkefni ótvírætt stuðlað að mun jákvæðari og betri samskiptum þessara aðila á undanförnum árum. Heimildarrit Bjöm Æ. Steinarsson, Einar Jónsson, Ólafur K. Pálsson, Sigfús A. Schopka og Gunnar Stefánsson, 1987. Ice- landic ground fish survey 1985-1987. ICES C.M. 1987/G:32, 25 (fjölrit). Einar Jónsson, Björn Æ. Steinarsson, Gunnar Jónsson, Gunnar Stefánsson, Ólafur K. Pálsson og Sigfús A. Schopka, 1991. Stofnmæling botn- fiska á íslandsmiðum 1990. ÆGIR, 1. tbl. 1991. Gunnar Jónsson, Björn Æ. Steinars- son, Einar Jónsson, Gunnar Stefáns- son, Ólafur K. Pálsson og Sigfús A. Schopka, 1990. Stofnmæling botn- fiska á íslandsmiðum 1990. Fjölrit Hafrannsóknastofnunarinnar nr. 22, 53 bls. Ólafur K. Pálsson, Björn Æ. Stein- arsson, Einar Jónsson, Gunnar Jónsson, Gunnar Stefánsson og Sigfús A. Schopka, 1991. Handbók um stofnmælingu botnfiska á íslands- miðum 1991. Hafrannsóknastofnun- in, 51 bls. (fjölrit).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.