Ægir - 01.01.1992, Blaðsíða 11
ÆGIR
3
1/92
Við skulum hugsa okkur að olíufélögin ákvæðu að
jafna verðið, greiða flutningskostnaðinn út á land og
jafna honum ofan á verðið til allra. Þar með yrði ver
olíufélaganna hærra en það yrði hjá olíufélagi sem
eingöngu annaðist viðskipti t.d. við höfuðborgar-
svæðið. Þetta myndi á skömmum tíma leiða til þess
að nýtt olíufélag kæmi til sögunnar og hefði eingöngu
viðskipti við hagstæðustu svæðin. Þetta nýja oliufélag
myndi á skömmum tíma hirða stærsta hluta bestu vi -
skiptanna. Viðbrögð olíufélaganna gætu ekki or i
önnur en þau að hætta flutningsjöfnun og keppa við
hið nýja olíufélag á jafnréttisgrundvelIi.
Þetta er nákvæmlega það sama og er að gerast a
bílatryggingamarkaðnum. Þar kemur nýtt t'élag og
býður lægra iðgjald fyrir bestu viðskiptin og hyggst
græða á þeim viðskiptum á meðan önnur félög tapa.
Þetta verður óhjákvæmilega til þess að þau trygging
arfélög sem fyrir eru verða að hverfa frá þeim jöfn-
unarsjónarmiðum sem tryggingar hafa byggst a.
heild verður kostnaður bíleigenda ekki minm en
áður. Kostnaður við tryggingarnar hefur aukist með
nýju félagi, en ekki verður séð að þetta hafi í sjá u ser
nein áhrif á fjölda tjóna. En vissulega eru það tjonin
sem skera úr um hvað bíleigendur greiða að lokum.
En auðvitað þarf ekki nýtt olíufélag til. Hvert hinna
þriggja olíufélaga sem nú eru á markaðnum gæti
tekið ákvörðun um að eiga einungis olíuviðskipti a
hagstæðustu svæðunum og láta önnur viðskipti ön
0g |eið. Þetta félag seldi á lægsta verðinu og fljótlega
næði það viðskiptum. Innan tíðar hefði það náð meiri
viðskiptum en áður, á kostnað hinna sem héldu
áfram að reyna að sinna landinu öllu. Eins og af þessu
sést geta olíufélögin ekki jafnað flutningskostnaðinn
sjálf. Þau yrðu fyrr eða síðar neydd til að hætta því til
þess að mæta samkeppninni.
Þess vegna er nauðsynlegt að halda áfram flutn-
ingsjöfnun á olíu ef það er raunveruleg skoðun þeirra
sem ráða ferðinni að það sé æskilegt að olía sé afls
staðar seld á sama verði. Það þýðir ekki að þykjast
hafa einhverja skoðun og rökstyðja hana á þann hátt
að ekki stenst. Það er sjálfsagt gott og gilt að hafa þá
skoðun að ekki eigi að vera sama verð á olíu um allt
land, heldur eigi kostnaður að ráða hverju sinni. En
þeir sem þá skoðun hafa eiga að segja það hreint út,
ekki að beita blekkingum. Verði flutningsjöfnun á
oifu hætt er það líklegt til að hafa gífurleg áhrif á
byggð í landinu og útgerðarhætti. Það getur vel verið
að það eigi rétt á sér. En þeir sem að því vilja stefna
verða að segja það. Þeir mega ekki hylja sig í blekk-
ingavaðli og þykjast meina eitthvað allt annað. En að
lokum er rétt að taka fram að flutningsjöfnun skerðir
möguleika á frjálsum viðskiptum á engan hátt. Að
tengja það saman er að blekkja.
Arni Benediktsson
/x~r ;
'''•rt
Cl
f