Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1992, Side 19

Ægir - 01.01.1992, Side 19
1/92 ÆGIR 11 76. mynd. Útbreiðsla og mergð 1989 árgangsins þegar bann var tveggja ára. grunnmiðum allt í kringum landið. Eins og áður sagði var farið 1 1. togararallið í marsmánuði 1985. Á 10. mynd er sýnd út- breiðsla og mergð 2ja ára fisks það ár þ.e.a.s. 1983 árgangsins. Á þessari litmynd táknar dökkblái liturinn að ekkert hafi fundist af þessum árgangi en eftir þvf sem Iiturinn dofnar og roðnar á mynd- unum eykst magnið. Við sjáum l-d- að mjög mikið er um 2ja ára þorsk þetta ár í ísafjarðardjúpi, í Húnaflóa, Skagafirði og í utan- verðum Eyjafirði en stærsti flekk- urinn er á Grímseyjar- og Kol- beinseyjarsvæðinu. Ljóst var strax eftir fyrsta rallið að 1983 árgangurinn yrði sterkur og hann varð það. ^ 11 • mynd er sýnd dreifing og ™ergð 1984 árgangsins þegar nann var 2ja ára eins og hann kom ram í stofnmælingum botnfiska arið 1986. Við sjáum að dreifing nans er gerólík því sem var á 2ja ára fiski árið áður. Aðalmergð 1984 árgangsins sem 2ja ára fisks var sem sagt miklu austar heldur en árgangsins frá 1983 og fannst nann langmest úti af Norðaustur- °g Austurlandi eins og myndin sýnir. Þegar þetta er haft í huga er e ki úr vegi að geta þess að vorið ^83 var kalt vor og lítið inn- I’ORSKUR 17. mynd. Heila línan sýnir bakreiknaða stærð þorskstofns- ins á íslandsmiðum (Grænlandsþorski sleppt) en brotna línan áætlaða stærð hverju sinni. það blái liturinn sem er yfirgnæf- andi vegna þess hve lítið fannst af 2ja ára fiski á þessum árum. Enda þótt hér hafi einungis verið sýnd útbreiðsla og magn 2ja ára fisks gildir hið sama þegar þessir árgangar voru á öðrum aldri. Það er af þessum sökum sem gert hefur verið ráð fyrir því að allir þessir árgangar verði mjög lélegir. Niduríag Reynsla undanfarinna ára sýnir að niðurstöðum Hafrannsókna- stofnunar er jafnan vel tekið ef hún ráðleggur auknar veiðar hvort heldur sem er í uppsjávar- eða botnfisktegundum. Öðru máli gegnir þegar niðurstöðurnar benda til þess að draga verði úr afla. Þetta á ekki síst við viðbrögð sjávarútvegsmanna á þessu ári. Gagnrýni þeirra á niðurstöður stofnunarinnar hefur verið með harðasta móti. Svo langt hefur þetta gengið að einn fulltrúi skip- stjórnarmanna lét það út úr sér á fjölmennum fundi að tillögur stofnunarinnar færu eftir duttl- ungum starfsmanna hverju sinni. í streymi Atlantssjávar norður fyrir land. Því er líklegt að 1983 árgangurinn hafi tekið botn strax haustið 1983 miklu vestar heldur en 1984 árgangurinn sem barst norður fyrir land á hlýju vori þegar miklu meira innstreymi Atlants- sjávar var á Norðurmið. Seiðin hafa því væntanlega verið komin austar þegar þau tóku botn haustið 1984. Löng reynsla er fyrir því að ókynþroska ungþorskur er venju- lega tiltölulega staðbundinn eftir að seiðin hafa leitað botns á 1. æviárinu. Ljóst var þegar á árinu 1986 að 1984 árgangurinn yrði mjög sterkur og hann varð það. 12. mynd sýnir mergð og út- breiðslu 1985 árgangsins. Við sjáum að hér ber miklu minna á rauðu litunum heldur en undan- farin 2 ár. Þetta er 1985 árgangur- inn og gert var ráð fyrir að hann yrði meðalárgangur, en síðar hefur komið í Ijós að hann reynd- ist í slöku meðallagi. Myndir 13- 16 sýna útbreiðslu og mergð 2ja ára þorsks á árunum frá 1988- 1991 þ.e.a.s. 1986-1989 árgang- anna. Á öllum þessum myndum er

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.