Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1992, Síða 30

Ægir - 01.01.1992, Síða 30
22 ÆGIR 1/92 ingar á meðalþyngd, en veruleg þyngdaraukning hjá 9 ára fiski. Á norðursvæði hafa orðið óverulegar breytingar á meðal- þyngd ýsu síðustu 3 til 5 árin (15. mynd). Nokkur þyngdaraukning varð þó hjá þriggja til sex ára ýsu 1991 miðað við 1990. Stofnvísitölur Þau stofnstærðargildi sem fást úr SMB-gögnum eru nefnd stofn- vísitölur. Þessar stofnvísitölur eru gefnar upp í fjölda fiska og í þyngd. Reiknaður er meðalfjöldi eða þyngd fiska í staðaltogi (4 sjm.) á undirsvæðum sem afmark- ast af reitum með sömu magn- einkunn. Meðaltal allra undir- svæða er síðan vegið með flatar- máli svæðanna. Meðalafli í togi sem fæst á þennan hátt er síðan margfaldaður með hlutfalli heild- arflatarmáls rannsóknarsvæðisins og yfirferðar (flm.) botnvörpunnar í staðaltogi, og fæst þá svokölluð stofnvísitala. Af ýmsum ástæðum er stofnvísitala í mörgum tilvikum lægri en raunveruleg stofnstærð: í fyrsta lagi er lóðrétt opnun botn- vörpunnar um 2-3 m, þannig að fiskur sem heldur sig lengra frá botni er utan gagnasöfnunar- svæðisins. í öðru lagi má gera ráð fyrir að hluti þess fisks sem lendir í opi vörpunnar sleppi áður en hann berst inn í vörpuna og í þriðja lagi að eitthvað sleppi út um möskva vörpunnar. Framan- greindir þættir eru að sjálfsögðu mismunandi eftir tegundum og stærðardreifingu viðkomandi teg- undar, en aðferðin gerir ráð fyrir að sama tegund sýni svipaða hegðun frá ári til árs. Þorskur Stofnvísitala þorsks árið 1991 reyndist nánast sú sama og árið áður, eða 292 þús. tonn en var 290 þús. tonn 1990 (16. myndJ.Á hinn bóginn lækkaði stofnvísitalan úr 513 þús. tonnum 1989 í um 290 þús. tonn 1990. Eins og fram er komið fyrr, á þessi samdráttur stofnsins að mestu leyti rætur að rekja til þess að sterku árgangarnir frá 1983 og 1984 hafa minnkað verulega frá því þeir komu inn í veiðistofninn á árunum 1987 og 1988. Þessa þróun mismunandi ár- ganga má lesa út úr 17. mynd Vísitala árgangs 1983 var í mars 1986 (þriggja ára fiskur) 115 millj- ónir og hefur síðan lækkað stöðugt einkum 3 síðustu árin og var 43 milljónir 1989, 17 milljónir 1990 og aðeins 5 milljónir í mars 1991. Árgangur 1984 hefur einnig minnkað ört úr 135 milljónum fiska 1988 í 24 milljónir 1991. Árgangur 1985 var um 90 millj- ónir árin 1988 og 1989 (þriggja og fjögurra ára) en var kominn niður í 20 milljónir 1991. Vísitölur yngri árganga hafa verið 25-30 millj- ónir fiska við þriggja ára aldur. Heildarvísitala stofnsins stóð í stað þrátt fyrir þetta árin 1990 og 1991 vegna Grænlandsgangna, en ekki er gert ráð fyrir Grænlandsgöngu á þessu ári. Þar með eru yfirgnæf- andi líkur á því að stofninn fari heldur minnkandi á næstu árum enda þótt ekki sé ástæða til að ætla að samdrátturinn verði jafn mikill og á árunum 1989-1990. Tölfræðilega nákvæmni stofn- vísitölunnar er metin með staðal- fráviki hennar („relative coeffic- ient of variation"). Því lægra sem ló.mynd. Stofnvísitölur helstu fisktegunda (þúsund tonn) 1985-1991.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.