Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1992, Page 42

Ægir - 01.01.1992, Page 42
34 ÆGIR 1/92 HAF- OG FISKIRANNSÓKNIR Skipaáætlun Hafrannsóknastofnunar 1992 Nú ríkir ekki sama óvissa um ástand loðnustofnsins og í upphafi s.l. árs. Engu að síður verður lögð mikil áhersla á loðnurannsóknir árið 1992, þótt eitthvað sé dregið úr þeim frá árinu áður. Gert er ráð fyrir að bæði r/s Arni Friðriksson og r/s Bjarni Sæmundsson verði samanlagt um 90-100 daga við þær. Stofnmæling botnfiska á 5 tog- urum verður nú framhaldið í 8. sinn en stofnmæling rækju verður framkvæmd á r/s Dröfn og r/s Árna Friðrikssyni, nú í fimmta skiptið. Rannsóknir á úthafskarfa verða auknar nokkuð. Farið verður í stuttan leiðangur á r/s Bjarna Sæmundssyni fyrri hlutann í apríl, einkum til könnunar á úthafskarfa innan íslensku lögsögunnar og síðan annar á sama skipi í júní- júlí til stofnmælinga ásamt Rússum í samvinnu sem skipulögð er á vegum Alþjóðahafrannsókna- ráðsins. Fjölstofnarannsóknir eru nú alláberandi í áætluninni, en 2 langir leiðangrar á r/s Bjarna Sæm- undssyni eru fyrirhugaðir í þær, svo og í tengslum við stofnmæl- inguna á togurunum. Vistfræði- rannsóknir á hrygningarslóð suð- vestanlands verður nú framhaldið í þriðja sinn, svo og hefðbundnum rannsóknum á ástandi sjávar, sem gerðar eru ársfjórðungslega. Þá er fyrirhuguð könnun á grálúðu norðan- og norðvestanlands, ef unnt verður að fjármagna slíkan leiðangur. Ýmsar innfjarðarannsóknir líða fyrir það, að Mímis nýtur ekki lengur við. Reynt verður að sinna einhverjum þeirra með bátum. Að öðru leyti ber áætlun skip- anna með sér, að leitast verður við að sinna nauðsynlegum, hefð- bundnum verkefnum en þó eru ný verkefni eins og fjölstofnaverk- efnið allfyrirferðamikil í áætlun- inni. Eins og mörg undanfarin ár, miðast úthald skipanna við 9 mán- uði samkvæmt ákvörðun fjárveit- ingavaldsins. Raunar er alls óvíst, hvort framlög á fjárlögum þessa árs duga til að halda skipunum úti svo lengi. Jakoh Magnússon. R.S. Árni Friðriksson Leið nr.______Dags.__________Verkefni_____________________________Athafnasvæði___________________Verkefnisnúmar 1. 3.1.-17.1. Stofnmæling loðnu A-land 23.02, 23.06 2. 21.1.-12.2 Stofnmæling loðnu og síldar SA-land 23.02, 23.03 3. 24.2.-13.3. Bergmálsmæling á loðnu og dýrasvifi V-land ísafj. djúp 23.02, 15.03 4. Mars Kvörðun bergmálstækja Hvalfjörður 23.05, 14.06 5. 18.6.-25.6. Surtseyjarrannsóknir Surtsey 14.23, 14.06 6. 29.6.-10.7. Stofnmæling rækju N 22.07, 15.06, 14.06 7. 14.7.-28.7. Stofnmæling rækju N 22.07, 15.06, 14.06 8. 5.8.-1.9. Fiskungviði Ástand sjávar Umhverfis landið 22.02, 16.01,23.04, 13.05, 13.04, 14.02, 14.06, 15.06, 20.07, 28.15 9. 10.9.-25.9. larðfræðirannsóknir NV, Skjálfandi 11.15, 11.21, 14.06 10. 12.10.-6.11. Stofnmæling loðnu Kjörhæfni loðnuvörpu V og N 23.01, 25.12, 16.01, 15.06 11. 16.11.-18.12. Stofnmæling síldar (Tvískiptur) VogS 23.03

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.