Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1992, Qupperneq 46

Ægir - 01.01.1992, Qupperneq 46
38 ÆGIR 1/92 Árni Geirsson: Séð og heyrt í Frakklandi Inngangur Stjórnvöld í Frakklandi og á ís- landi sömdu nýlega um víðtækt samstarf í ýmsum málum er varða rannsóknir tengdum sjávarútvegi. Akveðið var að hluti samkomu- lagsins skyldi felast í skiptum á rannsóknafólki á sviði fiskiðnaðar og kom að því í hlut Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins að senda fulltrúa til Frakklands. Markmið ferðarinnar var að kanna hvað væri efst á baugi þar í landi á sviði vinnslutækni bæði við frumvinnslu og úrvinnslu sjáv- arfangs. Við skipulagningu ferðar- innar var reynt að grafast fyrir um það hvaða aðilar í Frakklandi væru líklegastir til að vinna að nýjung- um á þessu sviði en starfsmenn systurstofnunar Rf, IFREMER, voru þar hjálplegastir. Að öðru leyti skipulagði starfsfólk gestamót- tökudeildar utanríkisráðuneytis Frakklands ásamt vísindafulltrúa franska sendiráðsins ferðina auk greinarhöfundar sem fór ferðina í byrjun nóvember. Af fiskvinnslutækjum Hér á landi eru roðfletti- og flökunarvélar frá VARLET allvel þekktar. Fyrirtækið er í Boulogne Sur Mer við Ermasund og fram- leiðir kjötvinnsluvélar auk fyrr- nefndra fiskvinnsluvéla. Sérstaka athygli greinarhöfundar vöktu roð- flettivélar sem einkum eru ætlaðar fyrir smáskötu eins og tinda- skötuna en hún er vinsæl í Frakkl- andi. Stærsta vélin afkastar allt að 500 kg/klst. og þá miðað við roðf- lettingu beggja vegna. Stærsti gaddurinn í barðinu verður eftir en því eru þarlendir neytendur vanir og fjarlægja hann sjálfir við elda- mennskuna. Þeir bjóða eina flöku- narvél sem að þeirra sögn kostar helming af verði Baader flökunar- vélar og er jafngóð á ákveðnu stærðarbili þ.e. 2,5-7 kg. Af 35 manna starfsliði fyrirtækisins sinna tveir þróunarverkefnum eingöngu. BREUIL heitir fyrirtæki í Landi- visiau sem er smábær utarlega á Bretagneskaganum, ekki langt frá Brest. Við stofnun þess árið 1977 voru verkefnin einkum útungunar- kerfi fyrir fiðurfé en verkefnum í fiskiðnaði hefur fjölgað mjög. Fyrirtækið sérhæfir sig í sjálf- virkum vinnslulínum og hefur sett upp slíkar fyrir fiskvinnslu í landi og á sjó. Fyrirtækið hefur t.d. inn- réttað fiskvinnsluhús með þrem flökunarlínum en þar lagði það til sjálfvirkan kassalosunar- og inn- vigtunarbúnað auk færibanda, ís- skömmtunar- og pökkunartækja. Flökin eru ísuð í frauðplastkassa og er síðan dreift í matvörubúðir. Breuil hefur einnig þróað surimi vinnslulínu í samvinnu við IFREMER. Aðeins 1—2 menn þarf til að sinna framleiðslunni og gæðin eru eins og á besta japönsku surimi að þeirra sögn. Vinnslulínur af þessu tagi hafa verið settar upp bæði um borð í skipum og á landi en vinnslulína með meðalafköst mun kosta u.þ.b. 19 milljónir franka. Breuil hefur á sínum snærum tilrauna- vinnslu þar sem unnt væri að kanna hve vel hinar ýmsu fiskteg- undir henta til surimivinnslu en þá þarf að senda þeim 400 kg af fersku hráefni. Miklar vonir eru bundnar við vatnsskurðartækni í fiskiðnaði. Greinarhöfundur heimsótti fyrir- tæki er nefnist ISIN í Bordeaux en það framleiðir vatnsskurðarvélar, bæði háþrýstidælur og hreyfi- búnað fyrir vatnsstútinn og með- flygjandi hugbúnað. Fyrirtækið hefur skorið fisk í tilraunaskyni í samvinnu við IFREMER og at- hugað hugsanlega beitingu þess- arar tækni í fiskiðnaði en þó ekki þróað neinn sérstakan búnað til þess. Fyrirtækið hefur til þessa sinnt mest skóiðnaði en þá er leður skorið með vatnsbununni eftir að pjötlunum hefur verið raðað á leðrið með aðstoð tölvu. Sem dæmi um frumlega beitingu vélar sem ISIN hefur selt má nefna fyrirtæki sem framleiðir snittur eftir pöntun með þeim útlínum og áleggi sem viðskiptavinurinn óskar og kremlínum síðan sprautað ofan á. Snitturnar eru hannaðar í AutoCad og framleiðsl- an eftir það sjálfvirk. Greinar- höfundur og fulltrúi ISIN urðu sammála um það að svo virtist sem tæknin við sjálfan vatnsskurð- inn væri vel þróuð og gæti nýst í fiskvinnslu en að nauðsynleg stoð- tækni eins og myndgreining og vélræn hreyfing ætti eftir að þróast nokkuð áður en víðtæk notkun verður raunhæf. Vöruþróun Greinarhöfundur varð var við mikinn áhuga Frakka á vöruþróun í matvælaiðnaði og þá ekki síst
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.