Tímarit lögfræðinga - 01.12.1952, Qupperneq 22
206
Títr.arit lögfrœöinga
Ákvæði þetta á rót sína að rekja til þýzkrar löggjafar,
eins og hér verður greint.
1 refsilögbókinni þýzku (Strafgesetzbuch fiir das
Deutsche Reich) frá 15. maí 1871 voru engin ákvæði um
upptöku ólöglegs ávinnings. Á fyrstu áratugum þessarar
aldar fór fram endurskoðun á lögbókinni, og voru samin
allmörg frumvörp til nýrrar refsilögbókar á árunum 1909
—1927. Kom þá til álita, hvort heimila skyldi upptöku ólög-
mæts ágóða, m. a. eftir fyrirmynd norsku hegningarlag-
anna frá 1902. Höfundar frumvarpanna voru yfirleitt mót-
fallnir því (sbr. t. d. Goldschmidt: Strafen, Vergleichende
Darstellung des Deutschen und Auslándischen Strafrechts,
Allgem. Teil, IV, bls. 450). I stað þess vildu þeir leysa
vandamálið um sviptingu ólöglegs ávinnings í sambandi
við ákvæði refsiiaganna um fésektir. Leiddi þetta til þess,
að með lögum frá 6. febr. 1924 um viðauka við refsilögbók-
ina frá 1871 var 27. gr. lögbókarinnar, er fjallaði um fé-
sektir, breytt og við hana aukið. Samkvæmt viðaukalög-
unum skyldi lágmark sekta vera 3 ríkismörk, en hámark
10000 ríkismörk. Frá þessari regiu gera viðaukalögin þó
tvær mikilsverðar undantekningar, eins og hér segir:
27. gr. a: „Bei einem Verbrechen oder Vergehen, das auf Ge-
winnsucht beruht, kann die Geldstrafe auf einhundert-
tausend Reichsmark erhöht und auf eine solche Geld-
strafe neben Freiheitsstrafe auch in denjenigen Fállen
erkannt werden, in denen das Gesetz eine Geldstrafe
nicht androht".
27. gr. c: „Die Geldstrafe soll das Entgelt, das der Táter fiir die
Tat empfangen, und den Gewinn, den er aus der Tat
gezogen hat, ubersteigen. — Reicht das gesetzliche
Höchstmal hierzu nicht aus, so darf es úberschritten
werden".
Eins og sjá má af ákvæðum þessum, leiddu Þjóðverjar
það í lög að svipta sökunaut sannanlegum ólögmætum
ávinningi með því að gera honum fésekt, er færi fram úr
fjárhæð ágóðans (27. gr. c), og einnig gerðu þeir kleift að
taka duldan ágóða með fésekt eftir álitum dómstóla (27.
gr. a). I síðara tilfellinu var þó ákvæðið um fésekt bundið