Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Blaðsíða 15
Ætlun stjórnarskrárgjafans hefur ugglaust verið sú, að
heifnildar til fjárveitingar væri aflað fyrir fram hverju
sinni, annaðhvort í fjárlögum eða fjáraukalögum. Venjan
hefur þó orðið önnur, svo sem kunnugt er, nefnilega sú,
að fjáraukalög, sem að réttu lagi hefðu átt að heita auka-
fjárlög, eru samþykkt eftir á, og eru tekin upp í þau þær
fjárveitingar, sem stjórnin hefur innt af hendi á liðnu
fjárhagstímabili umfram fjárlagaheimild eða án heimildar
í fjárlögum. Það hefur þannig myndazt sú venja, að heim-
ild eftir á fyrir fjárveitingu væri nægjanleg, og innir
ríkisstjórnin oftlega af hendi fjárgreiðslur umfram það,
sem leyft er í fjáidögum, stundum í samráði við miðstjórnir
flokka alþingis eða fjárveitinganefnd, en einnig oft á ein-
dæmi sitt, í því trausti að þingið samþykki fjárveitinguna
eftir á í fjáraukalögum. Framlagning fjáraukalagafrum-
varps eftir á er oftast í reyndinni ekki annað en skýrslu-
gjöf um fjárgreiðslur, en samþykkt fjáraukalaganna felur
auðvitað í sér syndakvittun ríkisstjórninni til handa.
En auk ákvörðunar um fjárveitingar og skattaálögur,
hefur alþingi hönd í bagga með endurskoðun á fjármeð-
ferð ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt 43. gr. stjórnarskrár-
innar kýs sameinað alþingi árlegá þrjá yfirskoðunarmenn
með hlutfallskosningu. Yfirskoðunarmenn þessir skulu
gagnskoða árlega reikninga um tekjur og gjöld landsins
og eiga þeir sérstaklega að gæta þess, hvort tekjur landsins
séu þar allar taldar og hvort nokkuð hafi verið af hendi
greitt án lieimildar. Þeir geta krafizt þess að fá allar
skýrslur og skjöl, er þeir telja sig þurfa. Síðan skal safna
þessum reikningum fyrir hvert fjárhagstímabil saman í
einn rcikning og léggja fyrir alþingi frumvarp til laga um
samþykkt á honum, og athugasemdir yfirskoðunarmanna.
Ekki er þess krafizt, að þessir trúnaðarmenn alþingis séu
sjálfir þingmenn, og hefur það farið eftir atvikum, hvort
þingmenn hafa verið kosnir til þessa starfa eða ekki. Oftast
hefur þó þingmaður — einn eða fleiri — verið í hópi yfir-
skoðunarmanna.
9