Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Page 16
Hér hefur lausl^ga verið drepið á þau almennu áhrif,
sem alþingi hlýtur að hafa á starfsemi stjórnvaldsins, bæði
með því að marka fyrir fram — með löggjöf, fjárveiting-
um og stjórnarmyndunum — höfuðstefnur um stjórnar-
framkvæmdir, og með eftirfarandi eftirliti og aðhaldi að
ríkisstjórninni. Um beina virka hlutdeild alþingis í sjálfri
stjórnsýslunni verður hins vegar naumast talað í sambandi
við þessar ákvarðanir alþingis.
En alþingi hefur einnig með öðrhm hætti en að framan
greinir áhrif á meðferð stjórnvaldsins. 1 stjórnarskránni
er atbeini alþingis beinlínis áskilinn til einstakra stjórn-
valds ráðstafana, eða vi'ssar ákvarðanir, sem í eðli sínu eru
stjórnarathafnir, eru lagðar undir löggjafarvaldið. Þannig
er samþykki alþingis áskilið til samninga við önnur ríki,
ef þeir hafa í sér fólgið afsal éða kvaðir á landi eða land-
helgi eða af þeir horfa til breytinga á stjórnarhögum ríkis-
ins, sbr. 21. gr. stjskr. Ekki má taka lán, er skuldbindi
ríkið, né selja eða með öðru móti láta af hendi neina af
fasteignum landsins né afnotarétt þeirra, nema samkvæmt
lagaheimild, sbr. 40. gr. stjskr. Enginn útlendingur getur
fengið hér ríkisborgararétt nema með lögum, 68. gr. stjskr.
Um ákvæði þessi og skýringu þeirra skal ekki fjölyrt hér.
Þau eru að sjálfsögðu misjáfrilega mikilvæg. Flestir munu
vera á einu máli um þýðingu þess, að samþykki alþingis
skuli vera áskilið til mikilsvarðandi milliríkjasamninga.
Þeir eru sennilegæfáir, sem rýra vilja vald alþingis á því
sviði. Líklegra þykir mér, ,áð fleiri vilji auka afskipti al-
þingis af milliríkjaskiptum; enda kemur það sjónarmið
glögglega fram í ákvæðunum um utanríkismálanefnd, sem
vikið verður að hér á eftir. Aftur á móti er lítil ástæða til
þess að áskilja lagasetningu til ríkisfangsveitingar. Eðli-
legra væri, að ríkisfang væri veitt með stjórnarathöfn. Sá
háttur er víðast hvar á hafður, t. d. á Norðurlöndunum,
nema í Danmörku. Þar gildir í þessu efni sama regla og
hér. Danska reglan hefur hér verið notuð sem fyrirmynd.
Eigi virðist heldur almennt ástæða til að áskilja samþykki
10