Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Page 19
að á síðari árum kann að hafa borið á nokkurri tilhneig-
ingu hjá fjárveitinganefnd til að færa út kvíarnar. Hefur
hún m. a. eitthvað unnið að athugun á rekstri ríkisins og
ríkisstofnana. Vegna þess hve starfstími hennar er stuttur,
hlýtur þó slík athugun að verða algert handahóf. Fjárlög
fyrir árið 1953 hafði nefndin t. d. um einn og hálfan mánuð
til athugunar fyrir fyrstu umræðu, og hélt á þeim tíma að-
eins 35 fundi, sbr. Alþt. 1952, A, þingskj. nr. 283d)
1 Danmörku er valdsvið fjárveitinganefndar mun víð-
tækara en hér á landi. Síðustu 30—40 árin hefur fjárveit-
inganefndin þar starfað allt árið. Þar hefur það orðið
venja, að án fjárlagaheimildar megi því aðeins inna af
hendi greiðslur úr ríkissjóði, að fjárveitinganefnd veiti til
þess samþykki. Aðalreglan er því sú, að í reynd fer nefndin
með fjárveitingavald þingsins. Af þeim sökum hefur fjár-
veitinganefndin danska verið mjög valdamikil og haft
mikil pólitísk áhrif þar í landi. Talið er þó, að nokkuð hafi
dregið úr áhrifavaldi dönsku fjárveitinganefndarinnar síð-
ustu árin.1 2) En áður var hún mikilvægur tengiliður milli
ríkisstjórnarinnar og stjórnmáiaflokkanna.
Á hinum Norðui’löndunum mun vald og starf fjárveit-
inganefndar hvers lands aftur á móti vera svipað og hér.3)
Því mætti hreyfa, hvort ekki væri rétt að taka dönsku
regluna hér til fyrirmyndar. Með þeim hætti gæti fjár-
stjórnarvald þingsins e. t. v. orðið raunhæfara en nú.
Hugsanlegt er og, að slík skipun hefði í för með sér mikið
aðhald að fjárstjórn ríkisins. Segja má e. t. v., að hugmynd
í þá átt komi fram í frumvarpi því, sem þáverandi for-
maður fjárveitinganefndar, Gísli Jónsson, flutti á alþingi
1952, um eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana. Þess
ber þó að geta, að skipulag það, sem frumvarpið gerði ráð
1) Gildandi íjárlög hafði nefndin til athugunar fyrir fyrstu um-
ræðu rúmlega hálían annan mánuð, og hélt á þeim tíma 40 fundi, sbr..
Aiþt. 1953 A, þingskj. nr. 251.
2) Sbr. B. Christensen í áður ivitnuðu riti, bls. 310—312.
Sjá umræðurnar á Heisingfors mótinu í áður umgetnu riti.
13