Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 37

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 37
eða viljalífs og hugsana. Þeir geta einnig eftir að þeir eru orðnir fullþroslca að mestu eða öllu leyti orðið fyrir sjúk- dómi þannig, að dragi úr andlegu lífi þeirra á öllum eða einstökum sviðum. 1 báðum tilfellum er þeim hætt við mis- vægi í tilfinningalífi og þar með athafnalífi, allt á milli algerðrar stirðnunar og athafnalömunar og hinna hrotta- legustu skammhlaupaverka fyrir sjúklegs örleika sakir. Hvatalíf þeirra getur verið aukið eða öfugsnúið, einkum er það svo um kynhvatir. Oft eru sjúklingar haldnir of- eða misskynjunum, sem hræþa þá eða ógna þeim, ofsóknar- hugmyndum, þokuvitund eða rugli o. s. frv. Það er auðvitað ógerlegt að segja nákvæmlega um, hve oft andleg afbrigði eða sérbrigði eru völd að lagabrotum.1) Vitneskju um þetta hafa menn reynt að afla sér aðal- lega með tvennu móti: a) úr sjúkrasögum geðveikra, sem lagðir hafa verið á sjúkrahús, b) með því að rannsaka geð- heilbrigði fanga. Það er allalgengt, að upplýst er um geðsjúklinga, sem koma á spítala, að þeir hafi einhvern tíma gerzt brotlegir við hegningarlögin. Aschaffenburg, þýzkur geðlæknir fann við rannsóknir í mörgum þýzkum spítölum, að um það bil Ys af karlsjúklingum hafði verið refsað áður. Prófessor Kinberg, sem í nærri fjörutíu ár rannsakaði öll réttar- psykiatrisk tilfelli í Stokkhóimi, áætlaði lögbrot almennt miklu tíðari meðal geðveikra en ekki geðveikra, og viss lögbrot þeirra 12—200 sinnum tíðari. Þó er langt frá því, að til sé nokkur glæpsemisgeðveiki. Þvert á móti virðist, hvaða tegund sjúkleika sem er, geta orðið valdandi að svo að segja hvaða glæp sem er, enda þótt vissar tegundir geðveiki og geðveilu virðist einkum verða valdandi að vissum tegundum glæpa. Hin leiðin, sem farin hefur verið, til þess að fá vitneskju 1) Schröder, G. E.: Psykiatrisk Undersögelse aí Mandsfanger i Dan- mark, Kbhavn I 1917, II 1927. 31

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.