Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 39

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1954, Side 39
dómarans eða annarra um, að sá, sem hann hefur framið, sé ekki andlega heill, fæst þó ekki vissa fyrir því, hvort svo hafi verið, nema með geðheilbrigðirannsókn, sem í sumum tilfellum er auðvitað auðgert, en oft getur verið mikið og vandasamt verk. Fyrst er ákveðið almennt, andlegt þroskastig mannsins. Um 10% fólks er einhvers staðar á milli hins vitgranna (svarajadi til 12—13 ára aldurs), sem þó hefur nægan þroska til að læra og bjarga sér allsæmilega í lífinu, og öryit’ahs, sem ekki nær 2 ára þroska. Það er auðskilið, að þessir fávitar fremji oft glæpi, er menn hugsa út í vits- munalegan vanþroska þeirra, vanþroskað og taumlaust til- finningalíf þeirra, og oft vantandi skilning á einföldustu siðgæðislögmálum. Við þannig fávitahátt er sem dregið sé úr andlegum þroska manns á öllum sviðum. 1 öðrum tilfellum er sem þroskinn hafi orðið fullkominn á sumum sviðum, en að honum sé ábótavant á öðrum, þannig að um andlega vansköpun sé að ræða. Þessir menn geta verið t. d. gáfnafarslega sæmilegir eða afburða, en tilfinningalíf og viljalíf svo brenglað, að þeir eru máske meira eða minna siðferðilega örvasa og oft með annan fót- inn í geðveiki. Það andlega ójafnvægi,1) sem sérkennir þessa menn, gerir, að þeim verður erfiðara að laga sig að öðrum og gerast þeir því t. d. iðulega brotlegir við lög og um- gengnisvenjur; það er um að ræða geöveilu hjá þessum mönnum. En bæði fávitar og geðveilir geta fengið þannig heila- sjúkdóm, að þeir verði geðveikir. Með fávitum er þetta þó frekar sjaldan, með geðveilum aftur á móti títt. Með full- þroska mönnum er það svo títt, að um það bil 22. hver maður veikist einhvern tíma svo á ævinni, að hann þyrfti að vistast af geðspítala um tíma. Margir geðsjúkdómar hafa svo hægan aðdraganda, að engan grunar, að um geðsjúkdóm sé að ræða. Á þessu 1) Wimmer — op. at. bls. 436 1. 2. n. § 437—468. 33

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.