Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Síða 17

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Síða 17
hlutunarnefnd úrskurðað bætur frá og með 16. atvinnu- leysisdegi, biðtíminn er m.ö.o. 15 dagar virkir í þessu tilviki. Þá er og heimild til þess fyrir úthlutunarnefnd, að fella niður eða stytta biðtíma þeirra, sem notið hafa sjúkra- eða slysadagpeninga, samkvæmt III. og IV. kafla laga nr. 24 29. marz 1956, og verða atvinnulausir, þeg- ar þær greiðslur falla niður, sbr. 17. gr. 3. mgr. Að und- anteknum nefndum heimildum, er skilyrðið um 36 at- vinnuleysisdaga, á síðustu 6 mánuðum ófrávikjanlegt. Það er ekki skilyrði bótaréttar, að atvinnuleysi sé al- gert og samfellt. Hinsvegar öðlast enginn bótarétt, sem ekki hefur verið atvinnulaus a.m.k. samtals 9 daga af síðustu 18 dögum, sbr. þó heimildina i 17. gr. 3. mgr. Sá, sem aðeins hefur 4 klst. vinnu á dag i samfellt 18 daga virka, hefur fullnægt þessu skilyrði. Ef atvinnu- leysi er algert, er því skilyrði fullnægt, þegar liðnir eru 9 dagar virkir. Þegar skilyrði bótaréttar eru uppfyllt samkvæmt framansögðu, skulu bætur úrskurðaðar fyrir þá virka daga umfram sex, sem umsækjandi hefur verið atvinnulaus síðustu 18 daga. Sá, sem öðlast bótarétt sam- kvæmt lögunum, á þvi þegar rétt til bóta fyrir þrjá daga, sbr. 17. gr. 1. mgr. Bætur skulu yfirleitt ekki greiddar fyrir skemmri tíma en þrjá daga, og engum skal greiða slíkar bætur lengur en fjóra mánuði ár hvert, sbr. 17. gr. 4. mgr. Hafi bótaþegi vinnu eftir að hann hefur öðlazt bóta- rétt, skal við ákvörðun þess dagafjölda, sem greiða skal bætur fyrir, draga frá einn atvinnuleysisdag fyrir hverja þrjá daga sem hann hefur vinnu. Dæmi: A. hefur öðl- azt bótarétt og notið bóta um slceið vegna algers at- vinnuleysis. Siðan hefur hann 4 klst. vinnu á liverjum degi i næstu 24 virka daga eða samtals vinnu í 12 daga virka, en atvinnuleysisdagar verða þá samtals 12. Fyrir þetta tímabil ber A bætur fyrir 12 -f- 12: 3 = 8 daga. Hafi hann aðeins haft 3 klukkutima vinnu á dag þetta tima- bil, verða vinnudagarnir 9, en atvinnuleysisdagarnir 15. Tímarit lögfræOinga 11

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.