Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Blaðsíða 39
undir áhrifum áfengis“ — hefur nefndin á hinn bóginn
farið inn á nýjar leiðir að nokkru leyti. Þegar skýra á
þetta hugtak, ber að sama brunni og áður var vikið að.
Orðin verða ekki skýrð alveg bókstaflega. Það er talið
visindalega sannað, að neyzla örlitils af áfengi, t. d. eins
eða tveggja svonefndra áfengra bjóra, valdi ekki þeirri
breytingu á mönnum, að þeir verði taldir undir áhrif-
um áfengis í venjulegri og eðlilegri merkingu þess orðs.
Jafnvíst er þó, að tiltölulega litil neyzla áfengis skerðir
aksturshæfni manna, a. m. k. flestra, en mjög er þetta
þó mismunandi. AJlt þetta mál hefur verið ýtarlega rann-
sakað á vísindalegan hátt og mikið um það ritað og
rætt, bæði hér á landi og erlendis. Nefndin hefur kynnt
sér aðalatriði þess, sem fram hefur komið erlendis um
þessi mál, eftir því sem tími og aðstæður hafa leyft. Auk
nefndarálita þeirra, sem getið er um í upphafi þessar-
ar greinargerðar, hefur nefndin einkum kynnt sér álit
nefndar, sem skipuð var i Svíþjóð 27. mai 1949 til þess
að athuga samband umferðar og áfengisneyzlu. Sú nefnd
lauk störfum 29. maí 1953, og er álit hennar birt sama
ár sem nr. 20 í „Statens Offentliga Utredningar“: Tra-
fiknykterhet.
Nefndin hefur og rætt þessi mál við ýmsa þá aðila
hér á landi, er helzt kunna skil á þeim, og m. a. kynnt
sér skýrslur um umferðarslys tilkynnt lögreglunni í
Reykjavík árin 1951—1952 (birtar í Tímariti lögfræð-
inga 1954, bls. 178).
Samkvæmt því, sem nefndin hefur komizt næst, er það
nokkuð almennt álit hér á landi, að eigi sé tekið nógu
hart á áfengisneyzlu við bifreiðaakstur, og tillögur hafa
komið fram um, að mjög verði hert á viðurlögum, jafn-
vel svo, að beitt sé ökuleyfissviptingu ævilangt og varð-
haldi við fyrsta brot. Nefndin gerir sér ljóst, að svipting
réttinda til aksturs er ein þeirra leiða, sem að haldi geti
komið til fækkunar umferðarslysum. Ehi þess ber jafn-
framt að gæta, að réttindasvipting er mjög þungbær
Tímarit lögfræöinga
33