Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Blaðsíða 42
er þeir menn skapa, er neyta áfengis í samljandi við
bifreiðaakstur, er mikil, elíki aðeins fyrir þá sjálfa, held-
ur og aðra, þá virðist ekki varhugavert, að viðurlög slíks
athæfis séu metin samkVæmt nokkuð almennari mæli-
kvarða en venjuleg sjónarmið refsiréttar og réttarfars
segja til um.
Að því var áður vikið, að það að vera með áhrifum
áfengis, sé mjög teygjanlegt hugtak. Samkvæmt vísinda-
legum rannsóknum og raunhæfum prófunum, hefur
reynslan orðið sú, að 0,5 %0 vínandamagn í hlóði skerði
hæfni allflestra manna svo, að varhugavert megi telja,
að þeir aki bifreið eða vélknúnum ökutækjum yfirleitt.
Þetta mark er hið lægsta, sem nefndinni er kunnugt um,
að nokkurt land noti í þessu sambandi (Noregur). 1 Sví-
þjóð er lágmarkið 0,8%o. I Danmörku hefur verið lagt
til, að það yrði 0,6%0. Hér kemur jafnframt til álita óná-
kvæmni sú, sem ekki verður komizt hjá, og virðist mark-
ið þvi ekki setjandi lægra en 0,6%o. En þeirri reglu ætti
þá að beita stranglega. Nefndinni er ekki kunnugt um,
að í nokkru landi sé ákært, ef %0 talan er lægri. Viðast
er hún hærri, sbr. að framan. Hér á landi mun ekki
hafa verið ákært, ef talan er lægri en 0,8%o.
Áður er vilcið að því, að þótt vínandamagn hafi náð
þessari %0 tölu, þá er nær alltaf um mjög lítil áfengisáhrif
að ræða og oft svo lítil, að eigi verður talin meiri hætta
af akstri manns með þeim áhrifum en margra þeirra, sem
aka án slíkra áhrifa. Það er því í algeru ósamræmi við
almenna réttarvitund og grundvallarsjónarmiði refsiréttar,
ef viðurlög við slíkum brotum eru gerð söm og fyrir önnur
miklu stórfelldari brot, sömu tegundar. Enginn samjöfn -
uður er t.d. á því, ef maður ekur með 0.5%o áfengismagn i
blóði eða ofurölvi. Hér verður því að gera mun á. Vand-
inn er að finna mörkin. Sömu sjónarmið eiga hér og um
lágmarkið. Hér ber því einnig að miða við vinandamagnið
í blóðinu. I þeim löndum, sem á annað borð hafa farið
þessa leið, hafa mörkin verið dregin \ið 1.20—1.50%o. Er
36
Tímarit lögfræöinga