Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Blaðsíða 34
þykir bera á, að dómarar og aðrir, sem viðskipti mega
eiga við ráðið, vanræki þess vegna að kveðja sér eftir
þörfum til aðstoðar og leiðbeiningar við rannsókn og
aðra meðferð mála, sérfróða lækna og láti sér einnig
gleymast, að til eru sjálfkjörnir réttarlæknar, þar sem
eru héraðslæknar (í Reykjavík borgarlæknir), en eðli-
legast er, að fyrst sé leitað álits þeirra um öll venjuleg
ráttarlælcnisfi-æðileg efni, enda hvarvetna greiður að-
gangur að þeim. Læknaráði var aldrei fyrirhugað að koma
í stað þessara sérfróðu aðila, heldur verða til viðbótar
þeim og talca þá fyrst við, er þeirra þjónusta hrekkur
ekki lengur til.
Læknaráði hentar illa að taka að sér almenn leiðbein-
ingarstörf um rannsókn mála, því að með því mundi
það gera sig meðábyrgt um tilhögun rannsóknarinnar
og eiga síðan á hættu, að fyrir það yrði lagt að úrskurða
um gerðir sjálfs sín. Sama gildir að sínu leyti um al-
menna réttarlækna.
Réttarrannsókn máls, er varðar læknisfræðileg efni,
getur að jafnaði ekki farið vel úr hendi, nema dómari
hafi sér við hönd þegar frá upphafi greinagóðan lækni
sér til leiðbeiningar og ráðuneytis um yfirhevrslur, öflun
gagna og tilkvaðningu sérfræðinga, eftir því sem þörf
krefur, svo og til að búa mál í hendur réttarlæknum og
læknaráði. Full þörf væri á, að í Reykjavík væri völ á
sérfróðum lögreglulækni, er dómarar þar og jafnvel víð-
ar um land ættu jafnan aðgang að sér til fulltingis.
Eins og læknaráð er skipað, er það mikils til of þungt
i vöfum til þess að geta tekið að sér venjuleg og brýnt
aðkallandi réttarlæknisstörf, enda liefur ráðið sem slíkt
engin skilyrði til að geta leyst af hendi réttarlæknisfræði-
legar rannsóknir. Auk þess er áhættusamt að láta slíkar
rannsóknir bíða afskipta læknaráðs, því að tækifæri til
þeirra getur iðulega verið glatað, þegar til kasta ráðs-
ins kemur.
Eðlileg viðskipti við læknaráð, að því er tekur til rétt-
28
Timarit lögfrœSinga