Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Side 36
Úr frumvarpi til umferðarlaga sem
lagt var fyrir Alþingi 1956
I II. liefti síðasta árgangs þessa rits er stuttlega skýrt
frá ofangreindu frumvarpi (bls. 126) og birtur kafli úr
áliti nefndar þeirrar, er frumvarpið samdi: „Um vinstri
og hægri handar umferð“ (bls. 109). Frumvarpið varð
ekki útrætt á síðasta Alþingi, en verður væntanlega lagt
fyrir næsta þing. Alkunna er, að á fáum sviðum löggjaf-
arinnar er höggvið nær daglegu lífi manna en á þessu.
Hér verður og mjög oft um refsivert athæfi að ræða og
margvíslegan ágreining. Ahugi almennings á þessum
málum er þvi mjög vakandi og margir vilja láta þau
til sín taka. Ökumenn — allra tegunda — umferðar-
lögregla, fótgangendur, vátryggingamenn o. s. frv.
hafa mikla reynslu hver á sínu sviði. En lieildar-
lausnina hljóta lögfræðingar að vera bezt fallnir til
þess að finna. Þetta á við frv. í heild, en þó allra helzt
þegar um refsingar og réttindasviptingu er að ræða. Til
þess að gera lögfræðingum — og reyndar öðrum —
hægara um vik, er þeir meta tillögur þær, sem i frum-
varpinu felast, tel ég rétt, að birta hér þær greinar frum-
varpsins — og athugasemdir við þær — er fjalla um refs-
ingar og réttindasviptingu. Áfengisáhrif og áfengisneyzla
skipta og svo miklu máli í þessu sambandi, að sú grein
frumvarpsins, sem sérstaklega fjallar um þau efni, er
tekin með. Th. B. L.
25. gr.
Enginn má neyta áfengis við akstur vélknúins ökutækis.
Enginn má aka eða reyna að aka véllmúnu ökutæki,
30
Tímarit lögfræöinga