Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 28

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 28
sögðu er ekkert því til fyrirstöðu, að læknir, sem er aðili að dómsmáli, komi fyrir ráðið sem vottorðsgefandi, til að gera grein íynr ræknisfræðilegum niðurstöðum, eins og aðrir vottorðsgefendur, því að aðild útilokar ekki þennan rétt. Ég minntist i uppháfi á grein Einars Arnórssonar i 2. hefti þessa rits árið. 1952, en hún fjallar um afskipti læknaráðs af máli ákæruvaidsins gegn Jónasi Sveinssyni o. fl. Mái þetta var lagt 8 sinríum fyrir læknaráð, þar af 7 sinnum af sakadómara og einu sinni af ákæruvaldi (dómsmálaráðuneyti) E. A. heldur þvi meðal annars fram í grein sinni, að læknaráði hafi verið skylt að bera mál J. Sv. undir hann sjálfan, þar sem málið hafi varðað aðgerð, hegðun eða framkomu læknisins. Vitnar hann í því sambandi til 3. mgr. 4. gr. 1. Ef síðast nefrid málsgrein er lesin í lieild, kemur í Ijós, að þar er átt við mál, sem borin eru undir ráðið skv. 3. mgr. 2. gr. 1., en slík mál hevra undir siða- máladeild, sbr. kaflann um hana hér á eftir. Læknaráði bar því engin skylda til að kalla J. Sv. fyrir sig í um- ræddu máli, enda kom aldrei til greina að hnekkja neinni læknisfræðilegri niðurstöðú í vottorði J. Sv. Af þvi leið- ir, að ráðinu var ekki heldur skvlt að bera málið undir stéttarfélag hans né undir ráðið 'i heild, þvi að tvö síðast nefnd atriði eiga einungis við um siðamáladeild, sbr. og hér á eftir. I máli J. Sv. var læknaráð meðal annars spurt um tiltekin atriði í læknisvottorði og framburði próf. Guð- mundar Tlioroddsen yfirlæknis, og með því að til greina kom að hnekkja tiltekrium niðurstöðum yfirlæknisins, var liann skv. 2. mgr. 4. gr. 1. boðaður á fund deildar- innar til að gera grein fyrir’afstöðu sinni. I lok lækna- ráðsúrskurðar nr. 2/1949 segir, að yfirlæknirinn hafi fallizt á þær athugasemdir, sem deildin gerði við svör hans. I lok forsendna úrskurðar nr. 3/1951 segir, að yfir- læknirinn hafi „ekkert að athuga við athugasemdir deild- 22 Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.