Tímarit lögfræðinga - 01.01.1957, Page 30
en skyldu sína, láti hann það eftir þeim. Hitt er svo
annað mál, að mjög væri æskilegt, að ráðsmenn gerðu
sér það að reglu, að kynna sér allar álitsgerðir réttar-
máladeildar, áður en þær eru staðfestar.
Skylt er að bera mál undir læknaráð í heild, ef einn
ráðsmaður krefst þess, sbr. 1. mgr. 6. gr. 1. Þá þarf að
halda formlegan fund um málið.
Verði ekki samkomulag i ráðinu um afgreiðslu máls,
skal þess getið í umsögn, enda á sá eða þeir, er ágrein-
ing gera, rétt á að gera sérstaka grein fyrir atkvæði
sínu, 3. mgr. 6. gr. 1. Samkv. 4. mgr. sömu greinar
skulu niðurstöður ráðsins að jafnaði rökstuddar, og ætið,
ef sá, er umsagnarinnar beiðist, æskir þess sérstaklega,
svo og ef ágreiningur er í ráðinu um niðurstöðu.
2. Heilbrigðismáladeild. Skv. 1. mgr. 3. gr. rg. fjall-
ar heilbrigðismáladeild um heilbrigðismál. Skv. 4. mgr.
2. gr. 1. lætur læknaráð stjórn heilbrigðismálanna i té
álit sitt í sambandi við mikilsverðar heilbrigðisfram-
kvæmdir, einkum varðandi meiri háttar sóttvarnarráð-
stafanir.
Stjórn beilbrigðismála á ein aðgang að læknaráði um
mál, sem ber undir heilbrigðismáladeild.
Ráðuneyti það, sem fer með beilbrigðismál, rannsakar
eða lætur í samráði við heilbrigðismáladeild rannsaka þau
mál, sem ber undir deildina, en síðan læknaráð tók til
starfa, liefur aðeins eitt mál verið afgreitt af beilbrigðis-
máladeild. Var það árið 1948, er leitað var umsagnar
ráðsins um mænusóttarfaraldurinn á Akureyri með sér-
stöku tilliti til þess, bvort nokkuð væri unnt að gera til
að verjast því, að sóttin bærist til Reykjavíkur og næði
sér þar niðri.
Við afgreiðslu málsins kvaddi deildin sér til aðstoðar
þrjá sérfræðinga, og fór einn þeirra til Akureyrar á veg-
um heilbrigðisstjórnarinnar og í samráði við deildina
til að kynna sér atferli faraldursins á staðnum, en skv.
1. mgr. 4. gr. 1. og 1. mgr. 5. gr. rg., er liverri deild ráðs-
24
Tímarit lögfræöinga