Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Qupperneq 8
verkefnaflokki eða málið sé, eigi að vera eða ætti að vera á verksviði stofn-
unar utan stjórnarráðsins.
Vafamálin varðandi stjórnarráðið eru fleiri. Valdmörk ráðherra eða ráðu-
neyta og annarra ríkisstofnana eru oft óljós. Getur heilbrigðisráðherra gefið
tryggingaráði bindandi fyrirmæli um að nota heimildarákvæði almannatrygg-
ingalaga — eða getur þessi sami ráðherra skipað lækni á Landspítalanum
að framkvæma tiltekna aðgerð? Líklega svara flestir þessum spurningum
neitandi, en svör við þeim og mörgum öðrum spurningum um valdmörk eru
álitamál.
Hér hefur verið bent á nokkur atriði, sem stjórnarráðið varða. Það þarf
ekki viðamikla athugun á skipulagi þess og starfsháttum til að komast að
raun um, að samræmi skortir um mörg atriði og óvissa er um önnur. Stundum
er sjálfsagt svo, að samræmis er ekki brýn þörf og óvissa kemur vart að
sök. Þó verður að ætla, að það myndi auka og treysta árangur af starfsemi
stjórnarráðsins, ef það væri skipulagt eftir gleggri meginreglum um þau
atriði. er að framan getur, og ef valdsvið þess væri betur markað.
Þ. V.
TÍMARIT LÖGFRÆÐINGA
Kristjana Jónsdóttir dómarafulltrúi, sem var framkvæmdastjóri Tímarits lög-
fræðinga 1975—1978, hefur nú látið af þeim starfa, en hún hvarf úr stjórn Lög-
fræðingafélagsins á síðasta aðalfundi. Við framkvæmdastjórn hefur tekið
ingibjörg Rafnar héraðsdómslögmaður, sem nú á sæti í stjórn Lögfræðinga-
félagsins. — Athygli er vakin á breytingu á áskriftargjaldi í 5.000 krónur fyrir
árganginn. Laganemar fá ritið fyrir 4.000 kr.
2