Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Side 10
arskipti og stjórnarathafnir starfsstjórna verður rætt, hvað niður-
stöður megi draga af könnuninni og hvort og hvaða réttarheimildir
aðrar komi til álita.
Síðan lýðveldi vai' stofnað hafa starfsstjórnir setið níu sinnum. Eru
þær þessar:
Starfsstjóm dr. Björns Þórðarsonar, 16.9. 1944 — 21.10. 1944.
Starfsstjórn Ólafs Thors (II) 10.10 1946 — 4.2. 1947
Starfsstjórn Stefáns Jóh. Stefánssonar 2.11. 1949 — 6.12. 1949
Starfsstjórn Ólafs Thors (III) 2.3. 1950 — 14.3. 1950
Starfsstjórn Ólafs Thors (IV) 27.3. 1956 — 24.7. 1956
Starfsstjórn Hermanns Jónassonar 4.12. 1958 — 23.12. 1958
Starfsstjórn Jóhanns Hafstein 15.6. 1971 — 14. 7. 1971
Starfsstjórn Ólafs Jóhannessonar 2.7. 1974 — 28.8. 1974
Starfsstjórn Geirs Hallgrímssonar 27.6. 1978 — 1.9. 1978
2. HEITIÐ
Með heitinu starfsstjórn er greint á milli þeirrar ríkisstjórnar, sem
situr eftir að forsætisráðherra hefur beðist lausnar fyrir sig og ráðu-
neyti sitt en forseti falið ráðuneytinu að sitja áfram, og þeirrar ríkis-
stjórnar, sem situr samkvæmt skipun forseta. Starfsstjórn felur for-
seti, eðli sínu samkvæmt, að sitja um takmarkaðan tíma, eða þangað
til nýtt ráðuneyti hefur verið myndað. Ríkisstjórn, sem skipuð hefur
verið, getur samkvæmt þingræðisreglunni setið ótímabundið, eða svo
lengi sem þingið veitir henni stuðning til þess. Heitið starfsstjórn er
ekki gamalt. I ritgerð sinni, Þingræði á Islandi, notar Bjarni Benedikts-
Björn Bjarnason lauk lagaprófi 1971. Hann var
síðan útgáfustjóri Almenna bókafélagsins til
1974, þá um skeið fréttastjóri hjá dagblaðinu
Vísi, en frá hausti 1974 hefur hann starfað í
forsætisráðuneytinu og verið skrifstofustjóri
þess frá 1975. í grein þeirri, sem hér er birt,
gerir Björn grein fyrir athugun sinni á réttar-
reglum um starfsstjórnir, þ.e. ríkisstjórnir, sem
starfa að tilmælum forseta íslands, eftir að þær
hafa beðist lausnar og forseti fallist á lausn-
arbeiðnina. Björn hefur m.a. kannað gerða-
bækur ríkisráðs allt frá lýðveldisstofnuninni, svo
og það, sem birt hefur verið um störf ráðherra
í starfsstjórnum í Stjórnartíðindum, Lögbirtinga-
blaði og Alþingistíðindum.
4