Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Síða 19
nýrrar stjórnar, þ.e. 6. desember. Ekki verður fjallað um ástæðurnar
fyrir flutningi einstakra frumvarpa. Þess má þó geta, að þegar frv. til
jarðræktarlága og frv. um varnir gegn næmum sauðfjársjúkdómum
kom til umræðu, var ný stjórn tekin við og mæltist landbúnaðarráð-
herra hennar til þess, að fyrrverandi landbúnaðarráðherra fylgdi mál-
unum úr hlaði, sem hann gerði.
Starfsstjórn Ólafs Jóhannessonai', sem sat frá 2. júlí 1974 til 28.
ágúst 1974, lagði fyrir sumarþingið 1974 nokkur lagafrumvörp, þessi:
Frv. til laga um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu
(staðfesting á brbl., samþykkt). Frv. til laga um breyting á lögum
nr. 48 1974 um happdrættislán ríkissjóðs til að fullgera Djúpveg og
opna þannig Djúpveg um Vestfirði (samþykkt). Frv. til laga um breyt-
ing á lögum nr. 58 29. apríl 1967, orkulög (endurflutt, ekki útrætt).
Frv. til laga um verðjöfnunargjald af raforku (endurflutt, samþykkt).
Athygli vekur, að á aukaþinginu endurflutti starfandi fjármálaráð-
herra, Halldór E. Sigurðsson, frv. til laga um fjáröflun til vegagerðar,
sem hafði verið flutt sem stjórnarfrumvarp á fyrra þingi. Frumvarpið
var endurflutt með nokkrum breytingum og ekki sem stjórnarfrum-
varp.
b) Þingsályktunai'tiIIögur.
Starfsstjórn Ólafs Thors 1946 lagði fyrir Alþingi tillögu til þings-
ályktunar um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta samning
um alþjóðaflug (samþykkt). Starfsstjórn Stefáns Jóhanns Stefáns-
sonar 1949 lagði fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um þátttöku
Islands í Evrópuráðinu (samþykkt), og tillögu til þingsályktunar um
heimild fyrir ríkisstjórnina til að yfirtaka læknisbústaðinn að Reyk-
hólum (samþykkt).
c) Fjárlagafrumvörp.
Eins og fram hefur komið, hafa þrjár starfsstjórnir lagt frumvörp
til fjárlaga fyrir Alþingi.
Starfsstjórn dr. Björns Þórðarsonar lagði frumvarp til fjárlaga fyrir
árið 1945 fyrir Alþingi 15. september 1944. Hafði þing þá setið í hálf-
an mánuð án þess að fjárlagafrumvarp væi’i fram lagt, og höfðu þing-
menn gert athugasemd við það utan dagskrár, að frumvarpið væri
ekki komið fram. Urðu um þetta orðaskipti milli Eysteins Jónssonar
og Björns Ólafssonar fjármálaráðherra (Alþt. 1944 B 376 og áfram).
í umræðunum sagði fjármálaráðherra m.a.: „Þar sem mér þótti sýnt,
að núverandi ríkisstjórn mundi biðjast lausnar, þá leit ég svo á, að
13