Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Side 31
27. mars til 24. júlí 1956 er skipaður skrifstofustjóri Alþingis, skóla-
yfirlæknir skipaður, 3 héraðslæknar settir, 4 leyfisbréf veitt læknum,
flugvallarstjóri Keflavíkurflugvallar skipaður, staðfest ráðning 5 að-
stoðarlækna héraðslækna, einn staðgöngumaður héraðslæknis settur,
settur sóknarprestur, skipaðir 4 sóknarprestar, forstjóri Áburðarsölu
ríkisins leystur frá starfi, skipaðir 2 sýslumenn, 5 ræðismenn skipaðir,
sendiherra í Moskvu skipaður til þess að vera jafnframt sendiherra
í Rúmeníu, fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu skipaður, full-
trúi skipaður í skrifstofu Alþingis, 4 leyfisbréf veitt tannlæknum,
skipaðir 2 héraðslæknar, 2 menntaskólakennarar skipaðir, skipaður
fulltrúi í utanríkisráðuneytinu, skipaður skattstjóri, sendiherra. í Lon-
don veitt lausn og hann skipaður ambassador í Frakklandi, 2 deildar-
stjórar skipaðir í Hagstofu Islands, stjórnarráðsfulltrúi skipaður full-
trúi I-flokks í utanríkisráðuneytinu, skipuð símastúlka í stjórnarráð-
inu, skipaður ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu og skipaður fasta-
fulltrúi Islands í Evrópuráðinu með sendiherranafnbót og sami maður
jafnframt skipaður sendiráðunautur við sendiráð Islands í Bonn.
4. desember til 23. desember 1958 er fulltrúi í landbúnaðarráðuneyt-
inu skipaður deildarstjóri í sama ráðuneyti, skipaður fulltrúi II stigs
í viðskiptamálaráðuneytinu og héraðslæknir skipaður.
15. júní til 14. júlí 1971 er skrifstofustjóri skipaður í landbúnaðar-
ráðuneytinu, skrifstofustjóri skipaður í ríkisendurskoðun, skrifstofu-
stjóri skipaður í sjávarútvegsráðuneytinu, skrifstofustjóri skipaður í
viðskiptaráðuneytinu, deildarstjóri skipaður í utanríkisráðuneytinu og
öðrum veitt lausn, deildarstjóri skipaður í sjávarútvegsráðuneytinu,
skipaður aðalræðismaður, skipaður sendifulltrúi í utanríkisþjónustu
íslands, skipaður deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, 21 kennari
skipaður, embætti héraðslæknis veitt, leyfisbréf útgefin handa 2 lækn-
um, 2 skólastjórar skipaðir, presti veitt lausn, 2 menntaskólakennur-
um veitt lausn, og prófessor skipaður við Háskóla Tslands.
2. júlí til 28. ágúst 1974 er skipaður deildarstjóri í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu, deildarstjóri skipaður í menntamála-
ráðuneytinu, deildarstjóri skipaður í félagsmálaráðuneytinu, lögreglu-
stjóra í Bolungarvík veitt lausn og nýr maður skipaður bæjarfógeti
þar, 2 dósentar skipaðir við Háskóla íslands, lögi’eglustjóri á Kefla-
víkurflugvelli skipaður, vararíkissaksóknari skipaður, skólayfirlæknir
skipaður, forstjóri Þjóðhagsstofnunar skipaður, sendiherra íslands
í Moskvu leystur frá störfum þar og nýr skipaður, sendiráðunautur
í London skipaður sendifulltrúi í London, deildarstjóri í utanríkisráðu-
neytinu skipaður sendifulltrúi, sendiráðunautur í Bonn skipaður sendi-
25