Tímarit lögfræðinga - 01.03.1979, Side 44
Frá
Bandalagi
liáskólaiiianim
3. ÞING BHM
Dagana 23. og 24. nóvember s.l. var 3. þing BHM haldið að Hótel Loftleið-
um. Dr. Ármann Snævarr forseti Hæstaréttar flutti ávarp í upphafi þings og
minntist 20 ára afmælis bandalagsins, en það var stofnað 23. október 1958,
og var dr. Ármann fyrsti formaður þess. Þá fluttu Guðmundur Magnússon
prófessor og Ásmundur Stefánsson lektor erindi um verðbólgu og vísitölu-
bindingu launa. Að þeim loknum fóru fram umræður um efni þeirra. Loks
störfuðu nefndir um starfsáætlun og fjárhagsáætlun, verðbólgu — vísitölu-
bindingu launa auk uppstillingarnefndar og ályktananefndar. Föstudaginn 24.
nóvember voru fluttar skýrslur stjórnar, launamálaráðs og ráðs sjálfstætt starf-
andi háskólamanna. Þá var samþykkt starfsáætlun og fjárhagsáætlun fyrir
næstu 2 ár. Loks var kjörin stjórn BHM og aðrir trúnaðarmenn. Vegna ákvæða
í lögum BHM um, að enginn megi sitja í stjórn lengur en 4 ár í senn, gengu
eftirtaldir úr stjórn: Dr. Jónas Bjarnason formaður BHM, Skúli Halldórsson BA
varaformaður BHM, Almar Grímsson lyfjafræðingur og Stefán Hermannsson
verkfræðingur. I stjórn BHM til næstu tveggja ára voru kjörnir: Formaður Dr.
Valdimar Kr. Jónsson prófessor og varaformaður Ómar Árnason menntaskóla-
kennari. Aðrir í stjórn voru kjörnir Jón L. Sigurðsson læknir, Guðmundur
Björnsson viðskiptafræðingur og Guðmundur Hjálmarsson tæknifræðingur.
í varastjórn voru kjörin Ragnar Aðalsteinsson hrl. og Kristín Indriðadóttir,
bókasafnsfræðingur.
Loks voru samþykktar á þinginu ályktanir um kjaramál, skattamál og hús-
næðismál.
RÁÐSTEFNA UM LÍFSKJÖR Á ÍSLANDI
Bandalag háskólamanna efndi til ráðstefnu um ,,Lífskjör á íslandi“ 3. og 4.
nóvember s.l. Á ráðstefnunni var fjallað um lífskjörin í viðtækum skilningi,
efnahagslegar forsendur þeirra, takmörk llfskjara, menntun og lífskjör, arð-
semi fjárfestingar, tækniþróun, launaskrið og launakjör á íslandi og öðrum
Norðurlöndum.
Ráðstefnan vakti mikla athygli, og blöð birtu útdrætti úr mörgum erindum.
Einna mesta athygli vakti erindi Bolla Þ. Bollasonar, en þar kom m.a. fram,
38