Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Blaðsíða 13
hyllingareiðum þeirra til handa Eiríki konungi og leggja fyrir þá hina
nýju lögbók.
Til að reka erindi þessi voru valdir Jón Einarsson og Loðinn leppur.
Um Jón er fátt vitað. Hann hafði tvívegis verið lögsögumaður, 1267
og 1269-70, og lögmaður var hann 1277. Hann kemur nokkuð við sögu
staðamála; styður leikmenn gegn Árna biskupi en leitast annars við
að miðla málum og koma á sáttum. Hann lézt 1306.2 Loðinn leppur var
einn helzti trúnaðarmaður Noregskonungs og átti sæti í ráði hans.
Hann hafði farið víða í sendifarir fyrir konung, m.a. til Spánar, Túnis
og Egyptalands. Hann lézt veturinn 1288-89.3
Helzta heimildin um lögfestingu Jónsbókar er Árna saga biskups
sem talin er rituð laust eftir aldamótin 1300. Greinir hún ýtarlega frá
atburðum en þó ekki alltaf jafnskilmerkilega og æskilegt væri.4 Verður
því víða að geta í eyður.
II.
Haustið 1280 og vorið 1281 tóku þeir sendimenn hyllingareiða af
landsmönnum og jafnframt var lögbókin skoðuð. Dró svo að þingi. Um
viðbrögðin segir í Árna sögu biskups að menn hafi fundið bókinni það
til foráttu, að óbótamál væru of mörg, að sum ákvæði hentuðu ekki
landsháttum hér og að Árni biskup hafi talið sitthvað í henni andstætt
kirkjulögum.
Sigurður Líndal lauk lagaprófi frá H.í. 1959.
Hann hafði tveimur árum áður tekið B.A. próf
í latínu og sögu, og cand. mag. prófi í sagn-
fræði lauk hann 1968. Sigurður var fulltrúi borg-
ardómara í rúmlega 214 ár 1959-1964, en stund-
aði þess á milli framhaldsnám í Danmörku og
Þýskalandi. Hann var hæstaréttarritari 1964-72
og hefur verið prófessor við lagadeild síðan
1972. Aðalkennslugreinar hans eru réttarsaga
og almenn lögfræði. Ennfremur hefur hann
kennt vinnumarkaðsrétt og í viðskiptadeild
stjórnarfarsrétt. Hann var dómari í Félagsdómi
1974-78. Sigurður hefur verið forseti Hins ís-
lenska bókmenntafélags síðan 1967 og er rit-
stjóri Sögu íslands, sem félagið gefur út að
frumkvæði Þjóðhátiðarnefndar 1974. — Grein
sú, sem hér birtist, er samin eftir fyrirlestri á hátíðafundi Lögfræðingafélags-
ins í Norræna húsinu 21. nóvember 1981, en hann var haldinn til að minnast
þess, að 700 ár voru liðin frá lögtöku Jónsbókar.
183