Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Blaðsíða 33

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Blaðsíða 33
Fra Lögmaimafélagi íslands AÐALFUNDUR 1S82 Aðalfundur L.M.F.Í., var haldinn föstudaginn 2. apríl 1982 að Hótel Sögu í Reykjavík. í upphafi fundar minntist formaður félagsins, Helgi V. Jónsson hrl., látinna félagsmanna, þeirra Þórólfs Ólafssonar hrl., Þorsteins Sveinssonar hdl., Ár- manns Jónssonar hrl. og Jóns Grétars Sigurðssonar hdl. Risu fundarmenn úr sætum til að votta hinum látnu virðingu sína. Fundarstjóri var kosinn Ragnar Aðalsteinsson hrl. og fundarritari Pétur Guð- mundarson hdl. í ársskýrslu stjórnar kom m.a. fram eftirfarandi: Á starfsárinu voru haldnir 5 almennir félagsfundir. Á fyrsta fundinum hinn 24. apríl hélt Dr. Gaukur Jörundsson prófessor erindi um Mannréttindasátt- mála Evrópu. Á öðrum fundi félagsins hinn 19. nóvember var fjallað um til- lögu stjórnar um kaup félagsins á fasteigninni Álftamýri 9 og önnur félags- mál. Á þriðja fundinum 18. desember flutti Þór Vilhjálmsson hæstaréttardóm- ari erindi um lögréttufrumvarpið og störf réttarfarsnefndar. Fjórði fundur fé- lagsins var haldinn 29. janúar og flutti prófessor Stefán Már Stefánsson erindi um ákvæði hlutafélagalaga um stjórnir hlutafélaga. Síðasti félagsfundur starfs- ársins var haldinn 11. mars og var þar fjallað um gjaldskrármál. Félagið var á starfsárinu þátttakandi í tveimur námsstefnum með öðrum að- ilum. Fyrri námsstefnan var haldin á vegum LMFÍ og Dómarafélags íslands að Hótel Valhöll á Þingvöllum. Þar var fjallað um þrjú efni: Samskipti rann- sóknarlögreglu og lögmanna, skipun réttargæslumanna og verjenda og sam- skipti dómara við sækjanda og verjanda. Framsögu um þennan dagskrárlið höfðu Hallvarður Einvarðsson rannsóknarlögreglustjóri og Páll A. Pálsson hrl. Þá var rætt um aðstöðu lögmanna við dómaraembættin, úthlutun mála, málatilbúnað. samskipti dómara og lögmanna um meðferð einstaks máls. Framsögumenn um þennan lið voru Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari og Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl. Þá var loks fjallað um málskostnað (gjaf- vörn), málsvarnarlaun og réttargæsluþóknun. Framsögu hafði Ragnar Aðal- steinsson hrl. Síðari námstefnan var haldin dagana 28. og 29. október á veg- um LMFÍ, Dómarafélags íslands og Lögfræðingafélags Islands á Hótel Loft- leiðum. Umræðuefnið var þær breytingar á meðferð einkamála í héraði, er taka skyldu gildi 1. janúar 1982. 203

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.