Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Page 35
Hinn 11. desember 1981 varð LMFl 70 ára og efndi stjórn félagsins af því
tilefni til afmælishófs í Átthagasal Hótel Sögu. Hófið sóttu um 150 manns.
Frá norska lögmannafélaginu kom sem fulltrúi þess Terje Herrem hæstarétt-
arlögmaður.
Stjórn félagsins leitaðist við að kynna félagsmönnum möguleika notkunar
tölva í lögmannsstarfi. Gekkst stjórnin fyrir kynnisferð lögmannna til Skýrslu-
véla ríkisins og Reykjavíkurborgar dagana 9.-11. nóvember 1981, þar sem
skoðaðir voru og kynntir ýmsir möguleikar til textavinnslu í tölvum. Hinn 14.-
20. mars 1982 stóð stjórn félagsins fyrir náms- og kynnisferð 35 lögmanna til
Kaupmannahafnar, þar sem dómstólar og lögmannsskrifstofur voru heimsótt-
ar auk þess sem upplýsingakerfi Datacentralens í Valby á sviði skattaréttar
var skoðað.
Hinar reglulegu nefndir félagsins höfðu ærinn starfa. Laganefndin gaf um-
sagnir um fjölmörg lagafrumvörp og þingsályktanir. Kjaranefnd fjallaði um
gjaldskrá félagsins, og gjaldskrárnefnd afgreiddi 19 erindi er til hennar bárust.
Úr stjórn félagsins gengu Helgi V. Jónsson hrl., Svala Thorlacius hdl. og
Ólafur Axelsson hdl. Formaður var kjörinn Jóhann H. Níelsson hrl. og með
honum í stjórnina Garðar Garðarsson hdl, Skúli J. Pálmason hrl. og Þórður
Gunnarsson hdl. Fyrir í stjórninni var Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.
Helgi V. Jónsson.
VINSAMLEGAST GREIÐIÐ MÓTTEKNA GÍRÓSEÐLA SEM ALLRA FYRST
H. N.
TILKYNNIÐ FLUTNING
Unnið er að endurskoðun félagaskrár Lögfræðingafélagsins og
áskrifendaskrár Tímarits lögfræðinga. Vinsamlega látið vita um
ný heimilisföng. Tilkynningar óskast sendar gjaldkera Lögfræð-
ingafélagsins. Hann er:
Valgeir Pálsson
c/o Trygging h/f
Laugavegi 178
105 Reykjavík
205