Tímarit lögfræðinga - 01.12.1982, Page 42
Frá
La adeild
lláskólans
SKÝRSLA UM LAGASTOFNUN HÁSKÓLAÍSLANDS
27. FEBRÚAR 1981 - 26. FEBRÚAR 1982
Starfslið:
Þessir kennarar í fullu starfi störfuðu við Lagastofnun 1981-82: Arnljótur
Björnsson, Björn Þ. Guðmundsson, Gaukur Jörundsson, Gunnar G. Schram,
Jónatan Þórmundsson, Páll Sigurðsson, Sigurður Líndal, Stefán Már Stefáns-
son og Guðrún Erlendsdóttir.
Stjórn:
Á fundi lagadeildar 27. febrúar 1981 voru þessir menn kosnir í stjórn stofn-
unarinnar til næstu tveggja ára: Gaukur Jörundsson, Guðrún Erlendsdóttir,
Jónatan Þórmundsson og Sigurður Líndal. Stjórn Orators, félags laganema,
hefur tilnefnt Tryggva Gunnarsson, stud. jur. í stjórnina. Sigurður Líndal var
kosinn forstöðumaður á stjórnarfundi stofnunarinnar 27. febrúar 1981.
Stjórnin hélt einn fund á tímabilinu 27. febrúar 1981 — 26. febrúar 1982.
Tveir almennir fundir voru haldnir í stofnuninni 8. mars og 25. september 1981.
Ársfundur var haldinn 26. febrúar 1982.
Rannsóknir 1980-81:
Rannsóknar- og ritstörf kennara í fullu starfi við lagadeild sem teljast
starfa við Lagastofnun Háskóla íslands voru sem hér segir:
Arnljótur Björnsson:
Ritstörf: Norskt rit um atvinnuslysatryggingar. (Ritfregn um bók Asbjörn
Kjönstad: Yrkesskadetrygden. TL 31 (1981), bls. 33-35. — Skaðabótaréttur á
undanhaldi. Löggjöf og tillögur um afnám skaðabótaréttar. TL 31 (1981), bls.
67-103. — Lækkun skaðabóta, þegar launþegi veldur tjóni í starfi. TL 31
(1981), bls. 150-157. — The main features of lcelandic Compensation Sy-
stems. Scandinavian Studies in Law 1981. — Yfirlit yfir bótakerfi á islandi.
Úlfljótur 34 (1981), bls. 17-40.
Fyrirlestrar: Bótaskylda án sakar. Haldinn á fundi í Lögfræðingafélagi ís-
lands 28. janúar 1982.
212