Ægir - 01.02.1995, Blaðsíða 11
Sjómannaalmanakiö á níræðisaldri
Sjómannaalmanakiö fyrir 1995 er
komió út á vegum Fiskifélags íslands
en þetta er í sjötugasta sinn sem fé-
lagib annast útgáfu þess. Sjómanna-
almanakió hefur komih út frá 1914
og er því meó þessari útgáfu komib
á níræbisaldur þó þab sé síungt.
Samkvæmt reglugerö nr. 189/1994,
um björgunar- og öryggisbúnaö ís-
lenskra skipa (grein 12.1), er sérhverju
fiskiskipi 12 m og lengra gert skylt ab
hafa Sjómannaalmanak um borö og
skal þaö endurnýjast árlega. Almanak-
iö er enda hiö gagnlegasta upplýsinga-
rit fyrir skipstjórnendur.
í Sjómannaalmanakinu er að vanda
fjölbreytt efni um hvaðeina sem
stjórnendum skipa er nauðsyn aö vita,
s.s. Iög og reglur sem skylt er að hafa
um borð, skrá yfir vita og sjómerki,
flóðtöflur og skipaskrá. Skráin er ítar-
legri en áður því nú er bætt viö Stand-
ard C númeraskrá. í almanakinu er aö
Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri
og ritstjóri Almanaksins.
finna kort af veiðisvæðum helstu fisk-
tegunda sem nytjaðar eru vib ísland.
Töluverðar breytingar hafa verið
gerðar á uppsetningu og efnisröbun í
almanakinu til þess að gera það að-
gengilegra og þægilegra í notkun.
Hafnaskrá er nýmæli í almanakinu.
Myndir af höfnum og nauðsynlegar
upplýsingar um þær koma sjófarend-
um til góða ásamt ítarlegri þjónustu-
skrá en ábur.
„Ætlunin er ab hafa nákvæmari at-
riðisorðaskrá í almanakinu í framtíð-
inni. Við höfum stækkað og breytt
skrá um radíóvita í samræmi við aukna
sókn íslenskra skipa á fjarlæg mið,"
segir Bjarni Grímsson fiskimálastjóri
og ritstjóri Sjómannaalmanaksins.
„Almanakib var seint fyrir að þessu
sinni en stefnt er ab því ab útgáfudag-
ur sé 1. des. ár hvert og þegar er hafin
vinna við almanak næsta árs," sagði
Bjarni.
Sjómannaalmanakið er selt hjá
Fiskifélagi íslands, Ellingsen og Átta-
vitaþjónustunni í Reykjavík og í bóka-
búbum eða hjá umboðsmönnum Fiski-
félagsins úti á landi. O
NY HONNUN FRA SKIPATÆKNI
59 metra nóta og flottrolls veiðisklp með 1230 rúmmetra sjókælitönkum
SKIPATÆKNI veitir alhliða ráðgjöf á sviði skipaverkfræði.
Hönnun og útboð nýsmíða. Önnumst einnig verk- og útboðslýsingar á breytingum og viðgerðum.
Gerum samanburð á tilboðum og sjáum um samningagerð, hönnun og útboð á fiskvinnslulínum,
hallaprófanir og stöðugleika-útreikninga. Vinnum einnig matsgerðir.
SKIPATÆKNI f
SKIPATEIKNINGAR OG RÁÐGJAFASTORF
CONSULTING ENG.& NAVALARCHITECTS
GRENSÁSVEGI 13 108 REYKJAVÍK SÍMI 568 1610 BRÉFSÍMI 568 8759
ÆGIR FEBRÚAR 1995 1 1