Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1995, Blaðsíða 32

Ægir - 01.02.1995, Blaðsíða 32
Þar sem Þjóðverjar fundu ab geymluþoliö í þessum rann- sóknum virtist háð umhverfis- hita gerðu þeir framhaldstil- raunir um borb í rannsókna- skipi sínu. Þeir mældu hitastig í karfa sem geymdur var í bráðnandi ís við annars vegar +0,5°C og hins vegar við +4°C. Hiti í karfanum var um +0,5°C þegar umhverfishiti var +4°C. Þegar umhverfishiti var um +0,5°C var hitastig karfans ná- lægt -0,5°C. Munurinn er um ein gráða sem getur þýtt lengra geymsluþol (jafnvel allt að 5 daga). Útskýring Þjóðverjanna á þessum hitamun í karfanum er sú ab við 4°C er orka til bráðnunar íssins tekin úr loft- inu. í tilraunum þar sem hiti er 1°C eða lægri er ekki hægt að taka bráðnunarhitann úr loftinu og er hann hugsanlega tekinn úr vatnsfasa fisksins þannig ab hitastig fisksins fer undir 0°C. Heildarniðurstöður Niðurstöður þessara rann- sókna sýna að ef geymsluað- stæður um borð í skipi eru góðar, rétt ísing og hitastig í lest um 0,5°C, er unnt að ná 3 vikna geymsluþoli á karfa. Niburstöburnar sýndu einnig að ísaður karfi veiddur síðustu 5 daga veiðiferðar getur geymst í allt að 12 daga en fiskur veiddur 14 dögum fyrir löndun á einungis eftir 4 til 6 daga þegar í land er komið. Þessar niðurstöður gáfu til kynna að karfinn geymdist lengur í ís þegar umhverfishiti var 0,5°C en þegar umhverfis- hiti var 4°C. □ Emilía Martinsdóttir starfar á Rannsóknastofnun fiskiðnaöarins. Greinin er byggð á grein í Intemational Jonrnal ofFood Science and Technology í júní 1994 eftir Hartjut Rehbein, Emilíu Martinsdóttur, Friðrik Blomsterber, Grím Valdimarsson og Jörg Öhlenscláger. SAMEINAST Auglýsingin sem birtist hér til hlibar vakti at- hygli margra þegar hún birtist í Morgunblabinu þann 22. janúar sl. Gub- mundur Ingason, sem rekur útflutningsfyrir- tækib G. Ingason Sea- food í Hafnarfirði, gekk meb birtingu hennar fram fyrir skjöldu og vill mynda sjóð sameig- inlegrar þekkingar á því hverja beri helst að varast í vibskiptum meb fisk. En hefur verið svindlab rækilega á Guðmundi nýlega fyrst hann lét verða af því að birta auglýsinguna? „Ég hef auðvitað lent í því eins og margir aðrir. Það finnast skúrkar í þessum bransa eins og annars staðar, bæbi innan lands og utan, og þeir reyna oft að notfæra sér reynsluleysi manna. Ég vil reyna að koma í veg fyrir það með því að menn skiptist á upplýsingum um varasama aðila." Guðmundur Ingason er líffrœðingur að mennt sem starfaði hjá Hafrannsóknastopi- uninni og síðar hjá Framleiðslueftirliti sjávarafurða áður en hann fór út í sjálfstœðan rekstur 1987. Hann hefur því fjölþœtta reynslu afýmiss konar viðskiptum. „Ég hef verið að selja fisk í 10 ár frá því að ég hætti sem deildarstjóri hjá Fram- leiðslueftirlitinu þegar það var lagt niður. Okkur hefur gengið ágætlega." Svindlað á tegundum En hvemig svindla menn hverjir á öðmm? „Ég hef séð framleiðendur innanlands reyna að afsetja fisk sem hefur verið hafnað hvað eftir annað. Fiskurinn er kannski af einhverjum ástæðum óhæfur til sölu og þá er reynt að koma þessum síðustu brettum út til einhvers sem þekkir ekki nógu vel til. Ég hef séð menn pakka fiski í rangar umbúðir til þess ab reyna að koma honum út og svindla þannig á tegundum. Hingab kom Spánverji fyrir tveimur árum. Hann vildi kaupa humar en humar er dýr vara, kostar 5 milljónir hver gámur. Ég endaði með því ab selja honum einn gám sem hefur aldrei verið greidd króna fyrir. Ég var greiðslutryggöur svo mitt tjón varð ekki algjört en tryggingafélagið er enn að reyna að rukka kaupandann sem er enn starfandi. Ég þekki dæmi um ab kaupendur fá sent eitt eða tvö bretti til prufu sem þeir síðan hafna vegna einhverra galla. Þá stendur seljandinn frammi fyrir því að það er gífurlega kostnaðarsamt að taka þessa litlu sendingu hingað heim aftur og lætur kannski kyrrt liggja. Þannig veröur hagnabur svikahrappsins 100% þó ekkert hafi ver- ið athugavert við fiskinn." Sölumenn sjávarafurða Undirritaður hefur áhuga á að mynda samskiptanet um aðila sem við höfum skað- ast á hérlendis og erlendis. ★ Engar greiðslur. ★ Óvægar kvartanir. ★ Léleg gæði eða vörusvik o.fl. Þetta yrði hinn „svarti kladdi" okkar viðskipta. Áhugasamir um þetta samskiptanet vinsam- lega hafið samband eða faxið upplýsingar með nafni og símanúmeri/faxi til Guðmundar Ingasonar, sími 653523, fax 654044. G. Ingason Seafood Seafood Export & Quality Controi Fomubúdir 8, 220 Hafnarfjördur, loéland Tel. (354)-1-653525 - Telex 3176 GING IS - Telefax (354)-1-654044 32 ÆGIR FEBRÚAR 1995

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.