Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1995, Blaðsíða 31

Ægir - 01.02.1995, Blaðsíða 31
Tafla 1 Gæði karfa við löndun metin Dagar í ís um ESB-flokkun Líklegasta borð í togara % kassa flokkunin 4 66 A, 33B A 5 15 E, 70 A, 15 B A 9 15 E, 50A, 35 B A 14 10E, 40A, 50B A 18 50 A, 50 B B 19 33 A, 66 B B Mynd 1. Niðurstöður skynmats á karfa eftir mislanga geymslu um borð og í landi Tafla 2. Samanburður á gæðum karfa frá fyrsta og síðasta degi veiðiferðar við löndun í Bremerhaven og eftir geymslu í landi. (Gæði eru metin með skynmati og efnamælingum.) 4 dagar um borf) 18 dagar um borb 4 dagar um borb 2 dagar í landi 2 dagar í landi 16 dagar í landi TMA (mgN/lOOg) 1,3 13,7 14 TVB (mgN/lOOg) 14,7 30,6 27 Skynmatseinkunn 8 4,6 4 og var karfinn fyrst mjúkur og safarík- ur en á endanum þurr. Þegar kom að mörkum geymsluþols, sem er einkunn 4 að mati Þjóðverja, var bragðinu lýst sem úldnu, skemmdu, ammoníaksbragði, sætu og ostkenndu. Að okkar mati gefa þessar lýsingar til kynna að komið sé niður fyrir mörk neysluhæfni. Það var einnig álit starfsmanns Rf sem tók þátt í skyn- matinu að neyslumörk Þjóðverjanna væru aðeins neöar en okkar og þeir sættu sig við verri skemmdareinkenni. Geymsluþol Niðurstöður skynmats á öllum sýn- unum eru sýndar á mynd 1. Sýnunum var safnað alla veiðiferðina og þau síð- an geymd áfram í landi. Þessi sýni hafa því verið geymd mislengi um borð og í landi. Við raunverulegar aðstæður, þegar neytandinn fær fiskinn, má bú- ast við að hann hafi verið geymdur mislengi um borð í skipi og síðan í landi. ísaður karfi hafði að meðaltali 18 daga geymsluþoi. Hluti af karfanum var á mörkum geymsluþols eftir 14 daga í ís en karfi sem geymdur var mestan hluta geymslutímans um borð náði um þriggja vikna geymsluþoli samkvæmt skilgreiningu Þjóðverjanna. Tafla 2 sýnir samanburð á gæðum karfa frá fyrsta og síðasta veiðidegi ásamt karfa sem geymdur var í Ham- borg mestallan tímann. Fiskur sem geymdur var 18 daga um borð og tvo daga í landi var á mörkum söluhæfni. Hitastig í fiski hækkabi við löndun og á uþpboðinu vegna þess að elsti karf- inn var að verða íslaus. Skemmdarhraöi karfans fór eftir ab- stæðum við geymslu. Karfinn sem geymdur var nær allan tímann óhreyfður í lest togarans geymdist lengst eba 17 daga um borð og 5 daga í landi en karfi sem geymdur var í kæli- geymslu mestallan tímann dæmdist óhæfur eftir 16 til 19 daga. Mismunur á hitastigi í kæligeymslu í landi og lest togarans var um 4°C. Einnig hafði meðhöndlun við löndun og flutninga áhrif á geymsluþol. Efnamælingar Helstu niöurstöður efnamælinga á TMA og TVB voru þær ab þessar mæl- ingar segja ekkert um ferskleika karfa fyrstu 12 daga í ís. TMA- og TVB-gildi fóru ekki að hækka fyrr en eftir 12 til 15 daga í ís. Á 22. degi geymslu voru TMA-gildin frá 6 og upp í 18 og TVB frá 36 upp í 48 mgN/lOOg. Gildiö 25 mgN/lOOg fyrir TVB hefur oft verið notaö fyrir mörk neysluhæfni og í fisk- vinnslu á íslandi hefur gildið 7 mgN/lOOg fyrir karfa verið notað en 10 fyrir þorsk. Þegar TVB var á bilinu um 25 til 30 mgN/lOOg sýndu skynmats- niðurstöbur mebalgildi frá 5 niöur í 1. Framhaldstilraunir Þjóðverja Venjulega hefur verið ætlað að hita- stig í fiski í bráðnandi ís sé um 0°C. ÆGIR FEBRÚAR 1995 31

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.